fbpx
Föstudagur 10.maí 2024
Eyjan

Áslaug Arna gagnrýnir viðbrögðin við Braggamálinu: „Hafa fram til þess kallað eftir afsögnum við minnsta tilefni“

Ari Brynjólfsson
Föstudaginn 19. október 2018 11:38

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Samsett mynd/DV

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður utanríkismálanefndar Alþingis, gagnrýnir viðbrögð vinstriflokkanna við Braggamálinu svokallaða í Nauthólsvík. Eins og fram hefur komið átti verkefnið að kosta rúmlega 150 milljónir króna en hefur nú kostað borgarbúa meira en 400 milljónir.

Áslaug Arna segir í grein í Morgunblaðinu í dag að eftir að hún skrifaði grein um málið hafi hún fengið spurninguna „Hefur formaður utanríkismálanefndar Alþingis ekki um nóg annað að hugsa en að gagnrýna borgarstjórnina í Reykjavík?“ frá innanbúðarmanni í Samfylkingunni.

„Nú er það reyndar svo að undirrituð er fyrst og fremst þingmaður Reykvíkinga og hefur því eðlilega nokkurn áhuga á því hvernig málum er háttað í Reykjavík. Þegar rekstur borgarinnar er jafn slæmur og raun ber vitni er ástæða til að vera enn frekar vakandi fyrir hönd Reykvíkinga,“ segir Áslaug Arna. Hún bendir á að þrátt fyrir mikla umræðu sé enn margt huldu varðandi málið.

„Það sem hins vegar vekur athygli eru viðbrögð vinstriflokkanna í Reykjavík. Sumir bregðast við eins með fyrrnefndum hætti, að þetta komi þingmönnum ekkert við og þeir eigi bara að hugsa um annað. Helst mætti skynja að borgarbúum kæmi þetta heldur ekki við, að þeir ættu bara ekkert að vera að skipta sér af þessu eða hafa skoðun á málinu.“

Segir hún viðbrögð Pírata eru einnig áhugaverð. „Píratar hafa fram til þess ekki þurft neinar rannsóknir eða staðreyndir til að fella stóra dóma um menn og málefni, saka aðra um spillingu og ætla öðrum allt hið versta. Þegar braggamálið kom fyrst til tals voru fyrstu viðbrögð Pírata að saka borgarfulltrúa um „pólitískt upphlaup“ og á liðnum vikum hefur borgarfulltrúi Pírata beitt sér gegn því að óháður aðili rannsaki málið. Þegar Píratar fóru í vettvangsferð í braggann var fjölmiðlum skipað að bíða fyrir utan. Hið margumtalaða gegnsæi var gert að gluggagægi. Sömu viðbrögð einkenna aðra sem hafa fram til þess kallað eftir afsögnum kjörinna fulltrúa við minnsta tilefni. Allir álitsgjafarnir og sérfræðingarnir um vandaða stjórnsýslu eru sjálfsagt enn í sumarfríi.“

Nefnt hefur verið í umræðunni um málið að pólitískir andstæðingar meirihlutans í borginni séu ánægðir með málið, sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi borgarstjóri og formaður Samfylkingarinnar á Facebook í gær: „Ákveðnir einstaklingar eru haldnir mikilli óþreyju að koma höggi á Dag B. Eggertsson og geta hreinlega ekki af sér borið meðan hann er í veikindaleyfi.”

Áslaug Arna segir engan ánægðan með þetta mál: „Nú er það reyndar ekki svo að það ríki einhver Þórðargleði yfir þessu máli því þeir sem tapa á málinu eru að lokum skattgreiðendur í Reykjavík. Hér er einfaldlega komið upp mál, mögulega eitt af mörgum, sem opinberar það hversu illa borginni er stýrt af vinstrimönnum. Það er engin yfirsýn, engin ábyrgð og ekkert skipulag. Það sem er þó verra er að það er ekkert sem bendir til þess að það sé að fara að breytast. Eins og við var að búast hefur Viðreisn stigið enn eitt skrefið til vinstri með að falla á sverðið fyrir samstarfsmenn sína í borginni. Frasinn um almannahagsmuni umfram sérhagsmuni hljómar vel, þangað til á hólminn er komið og taka þarf á málum. Þá vega sérhagsmunir vinstri meirihlutans þyngra en almannahagsmunir borgarbúa.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Ólafur Ragnar tekur sér Eirík Fjalar til fyrirmyndar og telur sig vera höfund þjóðarsáttarinnar

Orðið á götunni: Ólafur Ragnar tekur sér Eirík Fjalar til fyrirmyndar og telur sig vera höfund þjóðarsáttarinnar
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Spáglaðir jarðfræðingar

Óttar Guðmundsson skrifar: Spáglaðir jarðfræðingar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Fast skotið á Höllu Hrund – Líkt við froðusnakk sem hafi það eitt fram að bjóða að hafa búið í blokk og farið í sveit

Fast skotið á Höllu Hrund – Líkt við froðusnakk sem hafi það eitt fram að bjóða að hafa búið í blokk og farið í sveit
Eyjan
Fyrir 1 viku

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Halla Tómasdóttir – fólkið velur forsetann, ekki fjölmiðlar eða skoðanakannanir

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Halla Tómasdóttir – fólkið velur forsetann, ekki fjölmiðlar eða skoðanakannanir