fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Eyjan

Bjarni fundaði í Indónesíu – Ræddu þær áskoranir sem eru framundan

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 16. október 2018 11:25

Bjarni Benediktsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra sótti ársfund Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Alþjóðabankans á Bali í Indónesíu, sem haldinn var 8.-14. október.

Í tilkynningu frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu kemur fram að til umræðu hafi meðal annars verið þær áskoranir sem fjölþjóðasamstarf stendur frammi fyrir og mikilvægi þess að viðhalda slíku samstarfi og efla með nýrri tækni og nýjum leiðum.

„Meðal þeirra ógna sem steðja að fjölþjóðakerfinu er aukin spenna í alþjóðlegum viðskiptum, möguleg stigmögnun slæmra  samskipta helstu viðskiptavelda og ójafnvægi og uppsöfnum áhættu í hinu alþjóðlega hagkerfi sem sjóðurinn telur að geti dregið úr alheimshagvexti um 1% á næstu tveimur árum.

Samhliða ársfundinum átti Bjarni Benediktsson tvíhliða fundi með matsfyrirtækjum og fulltrúum AIIB, asíska innviðafjárfestingabankanum, auk þess sem hann tók þátt í fundi OXFAM hjálparsamtakanna um jöfnuð. Ísland er meðal fremstu ríkja í heimi þegar kemur að jöfnuði og lýsti Bjarni því að þar gegndu konur lykilhlutverki, mikil atvinnuþátttaka þeirra og góð menntun, og sú áhersla sem lögð hefði verið á málefni fjölskyldna og valdeflingu kvenna um áratuga skeið,“ segir í tilkynningunni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt