fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Eyjan

Félagsbústaðir fóru 330 milljónir framúr áætlunum við endurbætur – Framkvæmdastjórinn sagði af sér

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 15. október 2018 12:01

Auðun Freyr Ingvarsson Mynd- felagsbustadir.is

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stjórn Félagsbústaða hefur ákveðið að ráðast í gagngerar endurbætur á starfsemi og innra eftirliti félagsins í kjölfar úttektar sem gerð var vegna umframkostnaðar við endurbætur á 53 íbúðum Félagsbústaða við Írabakka í Reykjavík.

Í tilkynningu frá Félagsbústöðum segir að kostnaður við endurbætur hafi farið 330 milljónir fram úr upphaflegum áætlunum, eða úr 398 milljónum í 728 milljónir, sem er 83% framúrkeyrsla.

Um helgina sagði framkvæmdastjóri Félagsbústaða, Auðun Freyr Ingvarsson af sér.

Alvarlegar athugasemdir leiddu til uppsagnar

Í tilkynningu segir:

„Í maí 2016 óskuðu stjórn og framkvæmdastjóri Félagsbústaða eftir því við innri endurskoðun Reykjavíkurborgar að hún gerði úttekt á viðhaldsverkefni félagsins við Írabakka 2-16 á árunum 2012 -2016. Fyrir lá að ýmsar brotalamir höfðu verið á framkvæmd og skipulagi verkefnisins.

Skýrsla Innri endurskoðunar var nýlega kynnt fyrir stjórn og komu þar fram alvarlegar athugasemdir við stjórnhætti í tengslum við umrætt verkefni.  Þrátt fyrir að undanfarin ár hafi stjórn félagins átt í góðu samstarfi við framkvæmdastjóra um margþættar úrbætur á rekstri félagsins hefur framkvæmdastjóri, í ljósi þeirra athugasemda sem fram komu í skýrslu Innri endurskoðunar, kosið að segja starfi sínu lausu í þeirri von að sátt skapist um rekstur félagsins og svigrúm til frekari endurbóta.“

Samkvæmt tilkynningu leiddi úttektin í ljós að „á fjögurra ára tímabili sem hún tók til samþykkti stjórn framkvæmdir fyrir 398 m.kr.  Árið 2012 var farið af stað með viðhaldsverkefni upp á 44 milljónir króna til að skipta út gluggum, ofnum og tréverki á Írabakka 2-16, en fljótlega kom í ljós að mun meira viðhalds var þörf. Því samþykkti stjórn næstu fjögur ár framkvæmdir fyrir 398 m.kr.

Heildarkostnaður Félagsbústaða vegna þessara framkvæmda reyndist að lokum 728 milljónir króna sem er 330 milljónir króna umfram þær heimildir sem stjórnin veitti á framkvæmdatímanum og felur í sér 83% framúrkeyrslu. Úttektin leiðir í ljós að skerpa þarf á verkferlum og setur Innri endurskoðun Reykjavíkur fram margvíslegar ábendingar um hvernig bæta má innra eftirlit Félagsbústaða.“

Sigrún tekur við

Sigrún Árnadóttir mun taka við starfi framkvæmdastjóra þar til starfið verður auglýst:

„Stjórn Félagsbústaða telur ábendingar Innri endurskoðunar gagnlegar og hefur samþykkt að vinna að úrbótum í samræmi við þær. Sigrún Árnadóttir, fyrrum bæjarstjóri í Sandgerði og áður framkvæmdastjóri Rauða kross Íslands, hefur verið ráðinn sem starfandi framkvæmdastjóri þar til ráðinn verður nýr framkvæmdastjóri í kjölfar auglýsingar. Hlutverk Sigrúnar verður að vinna með stjórn félagsins að því að bæta verkferla og að hrinda úrbótum í framkvæmd sem koma fram í úttekt Innri endurskoðunar.

Meðal ábendinga sem Innri endurskoðun setur fram er að þegar fyrirséð eru mikil frávik frá samþykktum áætlunum beri að sækja formlega um viðbótarfjárheimildir til stjórnar áður en stofnað er til útgjalda.  Ennfremur er áréttað að Félagsbústöðum beri að hlíta lögum um opinber innkaup og koma á innkaupaferli sem felur meðal annars í sér að fram fari útboð þegar kostnaðaráætlun fer yfir viðmiðunarfjárhæðir. Þá er bent á að stjórn Félagsbústaða þurfi að setja félaginu innkaupastefnu til að stuðla að góðri innkaupastjórn og eyða óvissu um verklag við innkaup.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus