fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Eyjan

Missti vinnuna á Patreksfirði fyrir að reykja og líka húsnæðið – Hefur aðeins tvo daga til að finna nýja vinnu

Ritstjórn Eyjunnar
Föstudaginn 12. október 2018 13:26

Mikhal Jablonski

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég sætti mig alveg við að búa svona. Alla vega um einhvern tíma. Vonandi flytur kærastan til mín eftir ár eða svo, þá myndi ég náttúrlega vilja flytja úr herberginu og leigja litla íbúð,“ sagði Mikhal Jablonski, ungur pólskur maður þegar hann hafði starfað í rúma tvo mánuði fyrir Odda á Patreksfirði. Hann vann í frystihúsinu frá átta til fjögur, stundum fékk hann fjögurra tíma aukavakt við að þrífa vinnslusalinn. Mikhal býr í einu herbergi í húsi sem fyrirtækið á. Hann vann hjá leigusalanum og leigði hjá launagreiðandanum, eins og er að verða æ algengara meðal láglaunafólks, einkum á landsbyggðinni.

Þessi aðstaða grefur undan réttindum og öryggi verkafólks. Og Mikhal fékk að kenna á því stuttu eftir að við ræddum við hann í byrjun september. Stttu fyrir síðustu mánaðamót var hann kallaður til yfirmanna sinna klukkan tvö um daginn og fékk að vita að tímabundinn þriggja mánaða samningur hans um vinnu yrði ekki endurnýjaður. Hann ætti að klára vinnuna til fjögur en þyrfti svo ekki að mæta meir. Michal segist ekki alveg hafa skilið samtalið, en segir að honum hafi veri sýnd mynd úr eftirlitsmyndavél þar sem hann var úti að lesa skilaboð á símann og reykja. Verkstjórinn sagði að hann hefði brotið reglurnar, farið út að reykja á meðan vinnslan var í gangi innandyra. Fyrirtækið ætlaði því ekki að framlengja ráðningarsamninginn. Michal varð atvinnulaus á augabragði, enginn uppsagnarfrestur. Fólkið frá Odda sagði að hann mætti vera í tvær vikur enn í herberginu en yrði að vera búinn að rýma það fyrir þann tíma.

Saga Mikhal Jablonski er birt á Facebook-síðunni Samtök leigjenda á Íslandi. DV hefur endurbirt fjölmargar sögur sem hafa birst í Facebook-grúppunni og hafa þær allar vakið mikla athygli. Ljóst er að ástandið á leigumarkaði á Íslandi er skelfilegt. Í raun má segja að ekki sé neinn leigumarkaður fyrir hendi hér á landi. En aftur að sögu Mikhal Jablonski. Hún er svohljóðandi.

Michal hafði komið til Patreksfjarðar þremur mánuðum fyrr í þeirri von að geta unnið og greitt niður skuldir sínar í Póllandi. Nú er hann skyndilega staddur í litlum bæ í ókunnu landi, atvinnu- og heimilislaus. „Ég vil ekki fara aftur til Póllands,“ segir Michal og bætir við:

„Þar bíður mín ekkert nema skuldir sem ég get ekki borgað niður með vinnu í Póllandi. Mig vantar vinnu hér á Íslandi. En ég hef bara tvo daga til að finna hana.“

Michal er örvæntingarfullur. Vinkona hans sagði okkur að hann skuldaði mikið í Póllandi og óttaðist harkalega innheimtu, jafnvel ofbeldi. Michal hefur sent peninga heim til að borga niður skuldirnar en einnig til föður síns, sem þarf á hjálp að halda til að draga fram lífið. En hann hefur enga vinnu fundið enn, aðeins nokkra klukkutíma í snatt í kringum línubát. Hann hefur leitað til verkalýðsfélagsins og þar er verið er að skoða hans mál, hvort Oddi hafi staðið löglega að öllu. En tíminn líður hratt.

Þetta er í annað sinn sem Michal ræður sig til vinnu utan Póllands. Í fyrra vann hann á Spáni og Portúgal fyrir pólskt verktakafyrirtæki, sem tók að sér byggja sumarbústaði. Launin voru ekkert sérstök, en skárri en í Póllandi. Þegar hann réð sig til Odda um miðjan júní, eftir ábendingu frá góðun vin sem býr á Ísafirði, sá hann fyrir sér að vera á Patreksfirði í þrjú ár, vinna, eyða litlu og greiða niður skuldirnar, verða frjáls maður á ný. Kærasta hans á eitt ár eftir í námi í Póllandi og þau höfðu talað um að hún kæmi til Íslands að því loknu.

Og í september var Michal vonglaður og lét það ekki trufla sig þótt hann deildi efri hæð í húsi með þremur öðrum verkamönnum. Það er innangengt af hæðinni niður á neðri hæðina þar sem einstæð móðir býr með barni sínu og deilir íbúð með kærustupari, sem reyndar var að fara að flytja næstu daga. Húsaleiga fyrir herbergið er 25 þúsund krónur á mánuði. Michal kvartar ekki undan því, finnst það sanngjarnt.

Michal tilheyrir ört stækkandi hóp láglaunafólks sem býr í verbúðum. Í spjalli við bæjarbúa, meðal annars yfirmenn Odda, í Fjölvali á leið okkar úr bænum, var okkur sagt að farandverkafólki hefði fjölgað eftir því sem gengi krónunnar hefði styrkst og hagnaður fiskvinnslufyrirtækja dregist saman. Svo virtist sem fiskvinnslufyrirtæki teldu sig ekki lengur ráða við að borga laun sem dygðu verkafólkinu fyrir eðlilegu heimilishaldi og að smátt og smátt hefði verkafólki með fjölskyldur og heimilisrekstur verið skipt úr fyrir farandverkafólk sem vinnur á strípuðum töxtum og býr á verbúðum. Fyrir er á Patreksfirði stórt samfélag Pólverja, fólk sem hefur búið þar mislengi, sumt frá því á níunda áratug síðustu aldar. „Ætli það séu ekki hundrað Pólverjar á Patreksfirði,“ segir Michal, „það væri hægt að lifa hér án þess að kunna ensku eða íslensku, tala pólsku allan daginn.“

Michal er ungur maður í einskonar vinnubúðum, segist hanga í tölvunni eða spila fótbolta þegar hann er ekki að vinna. Hann er ekki á Patreksfirði til að lifa lífinu, hann er á Patreksfirði til að greiða niður skuldirnar svo hann geti lifað lífinu seinna meir. Michal segir:

„Ég get ekki farið heim. Ég verð að fá vinnu á íslandi. Ég er duglegur og er tilbúinn að gera hvað sem er“

(Ef þið hafið vinnu eða húsnæði fyrir Mikhal Jablonski getið þið sent skilaboð á Samtök leigjenda á Facebook.)

Á undanförnum vikum hafa leigjendur sagt sögu sína undir yfirskriftinni #leigjendurrísaupp. Samtök leigjenda á Íslandi hvetja alla leigjendur og þau sem vilja styðja baráttu þeirra að gangið í samtökin hér: http://leigjendasamtokin.is/#

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Er Gallup vanhæft í aðdraganda forsetakosninganna?

Orðið á götunni: Er Gallup vanhæft í aðdraganda forsetakosninganna?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn