Þessa dagana er unnið að uppsetningu eftirlitsmyndavéla sem íbúar í Linda- og Salahverfi völdu í íbúakosningum í verkefninu Okkar Kópavogur.
Samkvæmt tilkynningu frá Kópavogsbæ hafa þegar verið settar upp og teknar í notkun vélar við Skógarlind og undir brúarstólpa Reykjanesbrautar. Auk þeirra myndavéla bætast svo við eftirlitsvélar við KFC, við nýjan Arnarnesveg og á Vatnsendaveg við Ögurhvarf. Uppsetningu þeirra og tengingum vélanna við stjórnstöð lögreglu verður lokið á næstunni.
Með þessum vélum eru allar þær bifreiðar sem koma inn og út úr austurhluta Kópavogs myndaðar sem gerir eftirlit lögreglu með hverfunum auðveldara.
Kópavogsbær sér um uppsetningu vélanna sem eru annars vegar yfirlitsvélar og hins vegar vélar sem taka mynd af númerum bíla. Verkefnið er unnið í samvinnu Kópavogsbæjar, Neyðarlínunnar og Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, en lögreglan hefur ein rétt til þess að skoða myndefni úr vélunum, segir í tilkynningu.
Af því tilefni má minnast á ákvæði reglugerðar nr. 322/2001 um meðferð persónuupplýsinga hjá lögreglu, sem sett er með stoð í 3. mgr. 45. gr. pul., en þar er m.a. að finna ákvæði um rétt aðila til aðgangs að persónuupplýsingum sem skráðar hafa verið um hann hjá lögreglu. Samkvæmt 8. gr. á hinn skráði rétt á að fá frá lögreglu vitneskju um hvaða upplýsingar um hann er eða hefur verið unnið með, tilgang vinnslunnar, og hver fær, hefur fengið eða mun fá upplýsingar um hann. Í 9. gr. er hins vegar mælt fyrir um ákveðnar takmarkanir á upplýsingaréttinum. Rétturinn telst t.d. ekki vera til staðar ef óhjákvæmilegt er að upplýsingar fari leynt vegna lögreglustarfa eða ef nauðsynlegt er að vernda hinn skráða sjálfan eða réttindi eða frelsi annarra.
Kallað var eftir hugmyndum í verkefninu Okkar Kópavogur síðastliðið haust og kosið á milli þeirra í febrúar síðastliðnum.