fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Eyjan

Seðlabankinn og Fjármálaeftirlitið sameinast

Ritstjórn Eyjunnar
Fimmtudaginn 11. október 2018 13:34

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vinna við sameiningu Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins er hafin. Ráðherranefnd um efnahagsmál og endurskipulagningu fjármálakerfisins hefur ákveðið að hefja endurskoðun lagaumgjarðar um peningastefnu, þjóðhagsvarúð og fjármálaeftirlit. Fyrirliggjandi eru skýrslur sérfræðinga sem bregða birtu á ýmis viðfangsefni og tækifæri til úrbóta við framkvæmd peningastefnu og umgjörð þjóðhagsvarúðar og fjármálaeftirlits, nú síðast vinna starfshópa um endurskoðun á ramma peningastefnunnar og endurskoðun laga um fjármálaeftirlit frá því í júní sl.

Endurskoðun þessi kallar á eftirfarandi:

  1. breytingar á lögum sem lúta m.a. að peningastefnunni, núverandi verkefnum Seðlabankans og yfirstjórn,
  2. breytingar á lögum sem lúta að fyrirkomulagi þjóðhagsvarúðar,
  3. breytingar á lögum um fjármálaeftirlit,
  4. breytingar sem lúta að varanlegu fyrirkomulagi fjárstreymistækis,
  5. breytingar á yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar og Seðlabankans um verðbólgumarkmið,
  6. breytingar á verklagi í peningastefnunefnd Seðlabankans.

Meginleiðarljós vinnunnar verður að efla traust, gagnsæi og skilvirkni við yfirstjórn efnahagsmála. Miðað skal við að viðhalda verðbólgumarkmiði sem meginmarkmiði peningastefnunnar og sjálfstæði Seðlabankans og peningastefnunefndar hans til að beita stjórntækjum til að ná því en gera viðeigandi breytingar sem efla traust og auka gagnsæi. Ennfremur skal miðað við að sameina Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitið með þeim hætti sem eflir traust og tryggir skilvirkni við framkvæmd þjóðhagsvarúðar og fjármálaeftirlits.

Yfirstjórn þessa verkefnis verður í höndum ráðherranefndar um efnahagsmál og endurskipulagningu fjármálakerfisins sem í sitja forsætisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra og mennta- og menningarmálaráðherra. Á vegum ráðherranefndarinnar starfar verkefnisstjórn um peningastefnu, þjóðhagsvarúð og fjármálaeftirlit, skipuð af forsætisráðherra. Hún er skipuð fulltrúum forsætisráðuneytis og fjármála- og efnahagsráðuneytis auk tengiliða frá Seðlabankanum og Fjármálaeftirlitinu. Verkefnisstjórnin skal skila drögum að lagafrumvörpum til ráðherranefndar eigi síðar en 28. febrúar 2019.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus