fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Eyjan

Stjórnvöld breyta lögum um fiskeldi – Ráðherra getur veitt bráðabirgðarheimild

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 8. október 2018 20:09

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra mun leggja fram á Alþingi frumvarp til laga um breytingar á lögum um fiskeldi. Frumvarpinu er ætlað að lagfæra með almennum hætti annmarka á lögum um fiskeldi til framtíðar. Sá annmarki birtist í því að samkvæmt gildandi lögum er eina úrræði Matvælastofnunar í þeim tilvikum sem rekstrarleyfi fiskeldisstöðvar er fellt úr gildi að stöðva starfsemi hennar. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Samkvæmt gildandi lögum er rekstrarleyfi Matvælastofnunar skilyrði fyrir starfrækslu fiskeldisstöðva, sbr. 1. mgr. 4. gr. a. laga um fiskeldi. Samkvæmt 21. gr. c. sömu laga skal Matvælastofnun stöðva starfsemi fiskeldisstöðvar sem rekin er án þess að rekstrarleyfi sé í gildi.

Réttaráhrif þess að rekstrarleyfi er fellt úr gildi, m.a. með nýlegum úrskurðum úrskurðanefndar umhverfis- og auðlindamála, eru því þau að Matvælastofnun ber að stöðva þá starfsemi sem byggjast á leyfum sem úrskurðirnir lutu að. Ákvæðið í 21. gr. c. er fortakslaust. Tilgangur þess virðist, m.a. með hliðsjón af orðalagi þess, fyrst og fremst sá að tryggja Matvælastofnun örugg stjórntæki til viðbragða ef fiskeldisstöð yrði sett á fót án þess að leyfa fyrir starfsemi hennar hefði verið aflað. Hin fortakslausa regla í 21. gr. c. á hins vegar ekki vel við ef rekstrarleyfi fellur úr gildi m.a. vegna annmarka á stjórnsýslu leyfisútgáfunnar. Í slíkum tilvikum standa þvert á móti sterk rök til þess, m.a. sjónarmið um meðalhóf og um að komist sé hjá óafturkræfri og hugsanlega óþarfri sóun verðmæta, að stjórnvöldum sé með lögum veitt svigrúm til að meta þá hagsmuni sem um ræðir og m.a. hvaða úrræði eru best til þess fallin að ná fram réttri niðurstöðu máls að lögum.

Frumvarpið gerir ráð fyrir að í þeim tilvikum er rekstrarleyfi er fellt úr gildi geti ráðherra að fenginni umsögn Matvælastofnunar, enda mæli ríkar ástæður með, gefið út rekstrarleyfi til bráðabirgða til allt að tíu mánaða. Þá kemur fram í frumvarpinu að ráðherra geti sett rekstrarleyfi til bráðabirgða þau skilyrði sem þörf er á svo tilgangur leyfisins náist, m.a. um samdrátt þeirrar starfsemi sem þegar er fyrir hendi, um tímafresti vegna úrbóta eða ef um meðferð máls fyrir dómstólum er að ræða.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Katrín vildi Geir Haarde í fangelsi – hefur ekki beðist afsökunar

Orðið á götunni: Katrín vildi Geir Haarde í fangelsi – hefur ekki beðist afsökunar
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Varaþingmaður Samfylkingarinnar yfirgefur flokkinn – Segir Samfylkinguna hafa sofnað á mannréttindavaktinni

Varaþingmaður Samfylkingarinnar yfirgefur flokkinn – Segir Samfylkinguna hafa sofnað á mannréttindavaktinni
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkurinn sem yfirgaf sjálfan sig

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkurinn sem yfirgaf sjálfan sig
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Katrín með forskot á Baldur – Halla Hrund sækir í sig veðrið

Katrín með forskot á Baldur – Halla Hrund sækir í sig veðrið
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Kúrekar og jakkafatalakkar Alþingis – „Fólkið í fínu fötunum, með fínu skoðanirnar og fínu brosin“

Kúrekar og jakkafatalakkar Alþingis – „Fólkið í fínu fötunum, með fínu skoðanirnar og fínu brosin“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn
Eyjan
Fyrir 6 dögum

800 milljóna halli en þokast í rétta átt

800 milljóna halli en þokast í rétta átt