fbpx
Þriðjudagur 16.apríl 2024
Eyjan

Friðarsúlan tendruð á morgun – Ferjusiglingar í boði Yoko Ono

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 8. október 2018 16:40

Friðarsúlan tendruð í Viðey. Ljósmynd Roman Gerasymenko

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Friðarsúlan í Viðey verður tendruð í 12. sinn með friðsælli athöfn á fæðingardegi John Lennon á morgun, þriðjudaginn 9. október klukkan 20.00. Friðarsúlan mun varpa ljósi upp í himininn til 8. desember sem er dánardagur Lennons. Þetta kemur fram á vef Reykjavíkurborgar.

Samkvæmt fréttum frá 2014 nam kostnaður Reykjavíkurborgar við friðarsúluna um sex milljónum króna, þar af var hálf milljón vegna rafmagnskostnaðar. Stærsti viðhaldskostnaðurinn er í perunum, en í henni eru sex 2000W perur og níu 7000W Xenon perur, sem kosta um 2,1 milljón, samkvæmt svari menningar- og ferðamálasviðs við fyrirspurn Sveinbjargar Birnu Sveinbjörnsdóttur, borgarfulltrúa Framsóknar- og flugvallarvina árið 2014.

Fríar ferjur í boði Yoko Ono

Boðið er upp á fríar ferjusiglingar og strætóferðir fyrir og eftir tendrunina. Listasafn Reykjavíkur, Borgarsögusafn Reykjavíkur  og fleiri halda úti dagskrá sem hefst kl. 17.45 og stendur til 21.30.

Tónlistarmaðurinn Högni Egils flytur tónlist fyrir gesti frá 19.00-19.30 og tónlistarkonan GDRN flytur tónlist fyrir gesti frá 20.30-21.00. Tónleikarnir fara fram í Naustinu við Friðarsúluna. 

Yoko Ono býður upp á fríar siglingar yfir sundið. Siglt verður frá Skarfabakka frá kl. 17.30 til 19.30. Fríar strætóferðir verða frá Hlemmi að Skarfabakka. Fyrsti vagn fer frá Hlemmi kl.17.15 og ekur til 19.00. Fyrsta ferja eftir tendrun Friðarsúlunnar siglir frá Viðey kl. 20.30. Hægt að verður að taka strætó frá Skarfabakka að Hlemmi frá kl. 20.40 og þar til lokið verður að flytja gesti úr Viðey.

Dagskrá

Dagskráin hefst kl. 17.45 með leiðsögn um verk Richards Serra í Viðey á vegum Listasafns Reykjavíkur. Klukkan 18.00. hefst söguganga um byggð og sögu í eyjunni á vegum Borgarsögusafnsins. Leiðsagnirnar verða endurteknar kl. 18:45 og 19:00. F

Farið verður frá Viðeyjarstofu. 

17.45-19.30: Fjölskyldusmiðjur á vegum Listasafns Reykjavíkur í Naustinu

19:00: Högni Egils flytur tónlist i Naustinu.

19.40: Dagskráin við Friðarsúluna hefst með kórsöng Graduale Nobili undir stjórn Þorvaldar Davíðssonar.

20:00    Dagur B. Eggertsson flytur ávarp

Yoko Ono ávarpar gesti

20:05 Ljósið á Friðarsúlunni tendrað

20:30 Tónlistarkonan GDRN flytur tónlist í Viðeyjarnausti eftir athöfn

Kynnir kvöldsins er Unnar Gerir Unnarsson. Veitingasala verður í Viðeyjarnausti og Viðeyjarstofu. 

Óskatré Yoko Ono verða staðsett í Viðeyjarnausti og Viðeyjarstofu og geta allir gestir skrifað óskir um frið á miða sem verða á staðnum og hengt á óskatrén. Allt frá því Friðarsúlan var fyrst tendruð fyrir tíu árum hafa borist yfir milljón óskir af óskatrjám víðsvegar að úr heiminum.  

Friðarsúlan „Imagine Peace Tower“ er útilistaverk eftir Yoko Ono sem var reist í Viðey árið 2007 til að heiðra minningu Johns Lennons. Friðarsúlan er tendruð árlega á fæðingardegi Lennons þann 9. október og lýsir til 8. desember sem er dánardagur hans. Listaverkið er tákn fyrir baráttu Ono og Lennons fyrir heimsfriði. Friðarsúlan, er í  formi óskabrunns en á hana eru grafin orðin „hugsa sér frið“ á 24 tungumálum en enska heitið er vísun í lagið „Imagine“ eftir John Lennon. 

Fólk er hvatt til að klæða sig vel og í samræmi við veður. Nánari upplýsingar má finna á www.videy.com.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Sagan muni dæma þau og tíminn leiða í ljós hvað það muni kosta Reykvíkinga – „Þetta eru daprir tímar“

Sagan muni dæma þau og tíminn leiða í ljós hvað það muni kosta Reykvíkinga – „Þetta eru daprir tímar“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Guðbergur býður sig fram til forseta – Mun minnka við sig ef hann flytur til Bessastaða

Guðbergur býður sig fram til forseta – Mun minnka við sig ef hann flytur til Bessastaða