fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Eyjan

Gunnar Smári er fokillur út í Kristjönu – „Ég bið ekki að heilsa henni ef þið rekist á hana“

Ritstjórn Eyjunnar
Sunnudaginn 7. október 2018 11:03

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Mér er skapi næst að ganga í Eflingu og krefjast þess að félagið rannsaki störf Kristjönu Valgeirsdóttir undanfarna áratugi. Þar er örugglega margt brokað,“ segir Gunnar Smári Egilsson, stofnandi Sósíalistaflokksins, í færslu á Facebook-síðu sinni í gærkvöldi.

Send í leyfi

Mjög hefur gustað um Eflingu undanfarinn sólarhring, eða frá því að umfjöllun Morgunblaðsins í gær leit dagsins ljós. Þar var fullyrt að ólga ríkti á skrifstofun Eflingar eftir að Sólveig Anna Jónsdóttir og hennar fylking náði völdum í félaginu og að gjaldkeri og bókari hafi verið hraktir frá störfum vegna ágreinings um reikning frá eiginkonu Gunnar Smára, Öldu Lóu Leifsdóttur.

Sjá einnig: 

Gjaldkeri Eflingar sendur í veikindaleyfi fyrir að neita að greiða eiginkonu Gunnars Smára háan reikning

Gunnar Smári svarar umfjöllun Moggans:„Ég er atvinnulaus og fæ hvergi vinnu, ekki einu sinni íhlaupaverkefni“

Gunnar Smári sakar fjármálastjóra Eflingar um spillingu – Segir hana hafa beint viðskiptum til sambýlismanns síns

Reikningurinn frá eiginkonu Gunnars Smára var fyrir ljósmyndun og önnur verkefni fyrir félagið, þar á meðal verkefnið Fólkið í Eflingu sem nokkuð hefur verið fjallað um í fjölmiðlum að undanförnu. Er hún sögð áður hafa fengið greiddar um fjórar milljónir frá félaginu fyrir svipuð verkefni. Gjaldkerinn neitaði að greiða reikninginn án þess að bera hann undir stjórn félagsins og bókari félagsins studdi hann í þeirri ákvörðun. Afleiðingin af þeim mótþróa er sú að báðir þessir starfsmenn eru nú komnir í ótímabundið veikindaleyfi og mál þeirra eru jafnframt í höndum lögmanna sem undirbúa málsókn á Eflingu.

Bakherbergi Sjálfstæðisflokksins

Gunnar Smári var óhress með umfjöllun Morgunblaðsins og sagði að blaðið væri orðið hið eiginlega bakherbergi Sjálfstæðisflokksins. Fréttin í gær væri beint úr því bakherbergi.

Í færslu á Facebook-síðu sinni um miðjan dag í gær sakaði hann Kristjönu Valgeirsdóttur, fjármálastjóra Eflingar um spillingu. Sagði Gunnar að um árabil hafi Kristjana beint fundum Eflingar til veitingasals í rekstri sambýlismanns hennar og gætt þess að „vænn hluti félagsgjaldanna rynnu til fyrirtækis sambýlismanns síns“.

Segir Kristjönu heimildarmanninn

Gunnar hélt svo áfram í gærkvöldi þar sem hann fór ófögrum orðum um Kristjönu og varpaði ljósi á þær greiðslur sem fjallað hefur verið um. „Kristjana Valgeirsdóttir, fjármálastjóri Eflingar, hefur kosið að gera greiðslur til Öldu Lóu Leifsdóttir, eiginkonu minnar, að fréttaefni vegna deilna sinna við yfirmenn sína á skrifstofu félagsins. Í fréttum hafa ýmsar upphæðir verið nefndar, svo Kristjana, sem ein getur verið heimildarmaðurinn, virðist ekki muna lygi sína frá einu samtali að því næsta. En þar sem þessar greiðslur hafa verið gerðar opinberar er sjálfsagt að greina frá þeim.

Varpar ljósi á greiðslurnar

Gunnar sagði að Efling borgaði 40 þúsund krónur fyrir hvert viðtal, mynd, birtingu og dreifingu á Netinu. Samtals hafi félagið greitt fyrir 63 viðtöl af þeim 100 sem samið var um.

„Inn í þessari upphæð eru kostnaðargreiðslur sem eru samkvæmt kjarasamningi Blaðamannafélags Ísland á því þriggja mánaða tímabili sem fór í þessi 63 viðtöl kr. 69.000 vegna síma, fjarskipta og annars, kr. 83.333 vegna ljósmyndavéla, linsa, ljósa o.fl (m.v. vélbúnað fyrir 1 m.kr.) og 173.250 í akstur (25 km. að meðaltali á hvert viðtal og myndatöku, svæði Eflingar spannar til Þorlákshafnar og Hveragerðis og nær yfir stærstan hluta höfuðborgarsvæðisins). Samtals er þetta kr. 325.583 í útlagðan kostnað eða kr. 5.168 á viðtal/mynd.“

Þá sagði Gunnar að greiðslan til Öldu Lóu væri verktakagreiðsla. „Þær kr. 2.194.417 sem eftir standa skiptast því milli launatengda gjalda upp á kr. 556.792 (kr. 8.838 á viðtal/mynd) og launa upp á kr. 1.637.624 (kr. 26.994 á viðtal/mynd). Þessi laun yfir þriggja mánaða tímabil jafngilda kr. 545.875 á mánuði.“

Gunnar Smári benti á að Alda Lóa væri MA-próf og rúmlega þrettán ára reynslu í blaðamennsku. Grunnlaun hennar samkvæmt taxta Blaðamannafélags Íslands væri 473.460 krónur. „Ofan á þessi grunnlaun koma því kr. 72.415 sem jafngilda tæpum 15 yfirvinnustundum á mánuði, samkvæmt taxta BÍ, eða 3,4 yfirvinnustundum á viku.“

Gunnar sagði svo að heildarvinnufjöldi að baki þessum 63 myndum væri því um 524 stundir, „eða um 8 tímar og 19 mínútur á hvert viðtal, myndatöku, útskrift, í mörgum tilfellum þýðingu, myndvinnslu, yfirlestur og birtingu fyrir utan tímann sem fer í að finna fólkið, ræða við það áður en það fellst á þátttöku, ferðir til og frá vinnustöðum, lestur á viðtalinu fyrir fólkið til samþykkis og þar fram eftir götunum. Og kaffi og matartímar, þar sem miðað er við kjarasamning Blaðamannafélagsins, þeir eru innifaldir í vinnutímanum.“

Gunnar sagði það af og frá að Alda Lóa væri að mjólka Eflingu, hún vinni á strípuðum taxta síns stéttarfélags.

„Ómerkileg manneskja og illgjörn“

„Þessi fjármálastjóri Eflingar sem kaus að sverta starf Öldu Lóu í von um að koma höggi á yfirmenn sína, er augljóslega ómerkileg manneskja og illgjörn. Og örugglega rándýr á fóðrum innan félagsins. Ég vona að grasrótinni í Eflingu auðnist að losa félagið undan henni og öðrum henni líkum. Svona fólk ber höfuðsök á vondri stöðu verkalýðshreyfingarinnar, dræmri þátttöku almennra félagsmanna og þar með veiku afli hreyfingarinnar, og hefur því valdið verkafólki fjárhagslegu tjóni upp á hundruð milljarða á umliðnum árum með veikum samningum og allskyns undanlátssemi gagnvart fyrirtækjum. Til að bíta höfuðið af skömminni kom það fram í vor að Kristjana hafði flutt fé félagsmanna Eflingar til ávöxtunar hjá Gamma, sem er allt í senn starfsmannaleiga, okurlánafyrirtæki okurleigufyrirtæki. Í dag hef ég lært að frá því á síðustu öld hefur hún þröngvað þeim félögum sem henni hefur verið treyst fyrir að kaupa vöru og þjónustu af veitingafyrirtæki sambýlismanns síns. Mér er skapi næst að ganga í Eflingu og krefjast þess að félagið rannsaki störf Kristjönu Valgeirsdóttir undanfarna áratugi. Þar er örugglega margt brokað.“

Gunnar skrifar svo athugasemd undir færsluna þar sem hann birtir mynd af Kristjönu. Við myndina skrifar hann: „Hér er mynd af Kristjönu Valgeirsdóttur. Ég bið ekki að heilsa henni ef þið rekist á hana.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Varaþingmaður Samfylkingarinnar yfirgefur flokkinn – Segir Samfylkinguna hafa sofnað á mannréttindavaktinni

Varaþingmaður Samfylkingarinnar yfirgefur flokkinn – Segir Samfylkinguna hafa sofnað á mannréttindavaktinni
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Óæskilegt lesefni

Óttar Guðmundsson skrifar: Óæskilegt lesefni
Eyjan
Fyrir 6 dögum

800 milljóna halli en þokast í rétta átt

800 milljóna halli en þokast í rétta átt
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Þorsteinn Siglaugsson skrifar: Gervigreind og máttur tungumálsins

Þorsteinn Siglaugsson skrifar: Gervigreind og máttur tungumálsins