fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Eyjan

Utanríkisráðherra viðstaddur setningu allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna: „Aðildarríkin láti ekki þrönga þjóðarhagsmuni ráða för“

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 25. september 2018 18:10

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna var sett í dag í 73. sinn. Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra var viðstaddur setningu þingsins og hafði þetta að segja:

„Sameinuðu þjóðirnar hafa um áratugaskeið verið sá vettvangur þar sem ríki heims starfa saman að alþjóðlegum málefnum sem varða frið og öryggi, mannréttindi og þjóðarétt. Undanfarin ár hefur enn ríkari áhersla verið lögð á samvinnu um sjálfbæra þróun og umhverfis- og loftslagsmál. Samstarf ríkja innan Sameinuðu þjóðanna er ekki fullkomið en áskoranirnar sem við stöndum frammi fyrir krefjast þess að aðildarríkin láti ekki þrönga þjóðarhagsmuni ráða för heldur horfi til sameiginlegra heildarhagsmuna,“

segir Guðlaugur Þór, sem ávarpar allsherjarþingið á föstudaginn.

Frá setningu allsherjarþingsins í dag. Mynd: UN

Í gær voru haldnir viðburðir tengdir allsherjarþinginu þar sem utanríkisráðherra var á meðal þátttakenda. Í málstofu um aðgerðir gegn mansali og nútíma þrælahaldi lagði Guðlaugur Þór áherslu á samvinnu og minnti þar sérstaklega á viðkvæma stöðu kvenna og barna, sem Ísland hefði meðal annars gert að umtalsefni í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna fyrir skemmstu. Utanríkisráðherra tók jafnframt þátt í fundi ríkja sem myndað hafa bandalag gegn viðskiptum með vörur og tækni sem nota mætti til pyntinga og dauðarefsinga. Þá var hundrað ára fæðingarafmælis Nelsons Mandela minnst í gær og flutti forsætisráðherra Noregs, Erna Solberg, samnorræna ræðu að því tilefni.

Síðar í dag tekur Guðlaugur Þór þátt í umræðu um aðgerðir gegn plastmengun í hafi og sækir fund utanríkisráðherra Atlantshafsbandalagsins og Evrópusambandsins, sem Michael Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, býður til.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sigurður Amlín nýr rekstrarstjóri hjá Stöð 2

Sigurður Amlín nýr rekstrarstjóri hjá Stöð 2