fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Eyjan

Félag atvinnurekenda: „Reynt að kæfa rafrettubransann í fæðingu?“

Ritstjórn Eyjunnar
Föstudaginn 21. september 2018 14:45

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Félag atvinnurekenda hefur skrifað velferðarráðuneytinu bréf og krafist þess að reglugerð um rafrettur, sem Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra setti í byrjun mánaðarins, verði felld úr gildi. Reglugerðin fjallar um tilkynningar til Neytendastofu um markaðssetningu rafrettna og áfyllinga fyrir rafrettur sem innihalda nikótín. Samkvæmt reglugerðinni verða framleiðendur og innflytjendur rafrettna og áfyllinga fyrir þær að tilkynna allar vörur til Neytendastofu sex mánuðum áður en vörurnar eru settar á markað. Neytendastofa tekur síðan afstöðu til þess hvort varan uppfyllir öryggisstaðla. Gjaldið sem Neytendastofu er ætlað að taka fyrir hverja tilkynningu er 75.000 krónur, samkvæmt tilkynningu frá Félags atvinnurekenda.

Vörurnar CE-merktar
Rafrettur og áfyllingar hafa verið fluttar inn til landsins undanfarin ár án þess að þurft hafi að tilkynna stjórnvöldum það sérstaklega eða leita leyfa. Í yfirgnæfandi meirihluta tilvika eru vörurnar hins vegar CE-merktar, sem þýðir að framleiðandi, innflytjandi eða dreifingaraðili vöru ábyrgist að hún uppfylli þær grunnkröfur um öryggi og almennt heilbrigði sem tilskipanir Evrópusambandsins kveða á um, og hafa vörurnar því undirgengist prófanir og eftirlit í því skyni. Samkvæmt lögum um rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur, sem taka gildi 1. mars 2019, eru vörur hins vegar tilkynningaskyldar til Neytendastofu. Þar er jafnframt ákvæði um að Neytendastofu sé heimilt að innheimta gjald „til að standa undir kostnaði við móttöku þeirra og geymslu, meðhöndlun og greiningu upplýsinga sem hún tekur við.“

60-100 milljónir á búð
Samkvæmt upplýsingum sem FA hefur aflað frá félagsmönnum sem flytja inn og selja rafrettur, flytja flestar sérverslanir með rafrettur vörur sínar inn sjálfar. Algengt er að sérverslanir hafi 800-1300 vörunúmer á boðstólum.

„Að senda inn tilkynningu fyrir sérhverja vöru er því í fyrsta lagi yfirgengileg skriffinnska samkvæmt ákvæðum reglugerðarinnar og kostar í öðru lagi viðkomandi verslun 60-100 milljónir, sem allir sjá að myndi ríða slíkum rekstri að fullu. Einskis samráðs var leitað við innflytjendur eða seljendur rafrettna við samningu reglugerðarinnar og hún virðist byggð á algjörri vanþekkingu á vöruúrvali og -samsetningu í rafrettuverslunum. Eins og þessari reglugerð er stillt upp, er um að ræða tilraun heilbrigðisráðherra til að kæfa þessa atvinnugrein í fæðingu,“

segir Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda.

Ekkert tilkynningagjald á tóbaksvörum
Ólafur bendir jafnframt á að engir útreikningar á kostnaði Neytendastofu við að taka við og vinna úr tilkynningum hafi fylgt reglugerðinni.

„Stjórnvöld geta ekki skellt sköttum af þessu tagi á atvinnulífið án rökstuðnings. Það er síðan kaldhæðnislegt að það er líka skylt að tilkynna til opinberrar stofnunar ef fyrirtæki hyggst flytja inn tóbak, en fyrir þá tilkynningu er ekkert gjald tekið. Eins og þetta lítur út við fyrstu sýn mun ríkið taka hundruð milljóna króna af þessari atvinnugrein vegna tilkynninga um vörur, sem nú þegar hafa verið í notkun hér á landi án þess að nein vandamál hafi komið upp. Fyrir þá fjármuni má byggja upp mjög myndarlegt skrifræðisbákn með mörgum ríkisstarfsmönnum hjá Neytendastofu. Er það fyrirætlun ráðherra?“

Takmarkanir á rafrettur styrkja stöðu sígarettunnar
Í bréfi FA til ráðuneytisins er vakin athygli á því að innflutningur og sala á rafrettum veiti tugum manna atvinnu og velti núorðið líklega um þremur milljörðum króna. Jafnframt er bent á að gott framboð af rafrettum og aukin notkun þeirra hafi leikið stórt hlutverk í fækkun tóbaksreykingamanna, en þeim fækkaði um 13 þúsund á milli áranna 2014 og 2017. „Það er ábyrgðarhluti ef stjórnvöld stuðla meðvitað að því að draga úr framboði á rafrettum eða gera notkun þeirra dýrari. Takmarkanir á notkun rafrettna styrkja stöðu sígarettunnar.“ segir í bréfi FA.

Í bréfinu segist félagið reiðubúið, ásamt innflytjendum og seljendum þeirra vara sem um ræðir, „að vinna með velferðarráðuneytinu að setningu nýrrar reglugerðar, sem þjónar því markmiði að tryggja öryggi neytenda, jafnframt því að taka mið af raunverulegum aðstæðum á markaði og heilbrigðri skynsemi.“

Velferdarraduneyti rafrettur 200918

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Katrín vildi Geir Haarde í fangelsi – hefur ekki beðist afsökunar

Orðið á götunni: Katrín vildi Geir Haarde í fangelsi – hefur ekki beðist afsökunar
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Varaþingmaður Samfylkingarinnar yfirgefur flokkinn – Segir Samfylkinguna hafa sofnað á mannréttindavaktinni

Varaþingmaður Samfylkingarinnar yfirgefur flokkinn – Segir Samfylkinguna hafa sofnað á mannréttindavaktinni
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkurinn sem yfirgaf sjálfan sig

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkurinn sem yfirgaf sjálfan sig
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Katrín með forskot á Baldur – Halla Hrund sækir í sig veðrið

Katrín með forskot á Baldur – Halla Hrund sækir í sig veðrið
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Kúrekar og jakkafatalakkar Alþingis – „Fólkið í fínu fötunum, með fínu skoðanirnar og fínu brosin“

Kúrekar og jakkafatalakkar Alþingis – „Fólkið í fínu fötunum, með fínu skoðanirnar og fínu brosin“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn
Eyjan
Fyrir 6 dögum

800 milljóna halli en þokast í rétta átt

800 milljóna halli en þokast í rétta átt