fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Eyjan

Ragnar Þór: „Fjármálaráðherra talar um veislu á meðan fólkið okkar er að gefast upp“

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 12. september 2018 12:55

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, er gagnrýninn á fjárlagafrumvarpið sem kynnt var í gær. Hann minnist á að persónuafsláttur hækki um heilar 539 krónur og að Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, tali um „veislu“ meðan fólk sé að „gefast upp“:

„Persónuafsláttur hækkar um 539 kr. Hluta af skertum barnabótum skilað til baka. Vörugjöld á bensín og bifreiðar hækka. Vaxtabætur lækka um 600 milljónir. Heildsalar og framleiðslufyrirtæki eru að hækka verð. Krónan hefur veikst um 7-8% gagnvart USD og Evru frá 1.Ágúst. Seðlabankinn hótar vaxtahækkunum verði launahækkanir umfram 4%. Fjármálaráðherra talar um veislu á meðan fólkið okkar er að gefast upp.“

 

Ragnar Þór spyr einnig hvernig samfélagi við ætlum að skila til afkomenda okkar:

„Kynslóðirnar á undan náðu fram, með þrotlausri baráttu, öllum þeim réttindum og lífsgæðum sem við þekkjum í dag. Hvernig samfélagi ætlum við að skila til afkomenda okkar? Ætlum við að skila af okkur samfélagi betri lífskjara eða vera kynslóðin sem taldi lífskjarabaráttuna snúast um okkur sjálf eða hvað er í þessu fyrir mig á meðan innviðir samfélagsins molna undan okkur? Ætlum við að láta þetta yfir okkur ganga eða standa saman í að bæta lífskjör þannig að við getum búið í samfélagi þar sem hægt er að lifa með mannlegri reisn af dagvinnulaunum og fá ekki lífstíðar fátæktardóm ef eitthvað kemur uppá?“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Katrín vildi Geir Haarde í fangelsi – hefur ekki beðist afsökunar

Orðið á götunni: Katrín vildi Geir Haarde í fangelsi – hefur ekki beðist afsökunar
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Varaþingmaður Samfylkingarinnar yfirgefur flokkinn – Segir Samfylkinguna hafa sofnað á mannréttindavaktinni

Varaþingmaður Samfylkingarinnar yfirgefur flokkinn – Segir Samfylkinguna hafa sofnað á mannréttindavaktinni
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkurinn sem yfirgaf sjálfan sig

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkurinn sem yfirgaf sjálfan sig
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Katrín með forskot á Baldur – Halla Hrund sækir í sig veðrið

Katrín með forskot á Baldur – Halla Hrund sækir í sig veðrið
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Kúrekar og jakkafatalakkar Alþingis – „Fólkið í fínu fötunum, með fínu skoðanirnar og fínu brosin“

Kúrekar og jakkafatalakkar Alþingis – „Fólkið í fínu fötunum, með fínu skoðanirnar og fínu brosin“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn
Eyjan
Fyrir 6 dögum

800 milljóna halli en þokast í rétta átt

800 milljóna halli en þokast í rétta átt