fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Eyjan

Ráðherrar gefa út ársskýrslur sínar í fyrsta skipti

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 12. september 2018 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ársskýrslur ráðherra eru nú birtar í fyrsta skipti samkvæmt 62. gr. laga nr. 123/2015, um opinber fjármál. Í lögunum er kveðið á um að hver ráðherra skuli birta slíka skýrslu þar sem gera skal grein fyrir útgjöldum málefnasviða og málaflokka og bera saman við fjárheimildir fjárlaga.

Í ársskýrslunum skal gera grein fyrir fjárveitingum til einstakra ríkisaðila og verkefna og leggja mat á ávinning af þeim með tilliti til aðgerða og markmiða sem sett hafa verið fram í fjármálaáætlun. Ársskýrslunum er þannig ætlað að stuðla að auknu gagnsæi um ráðstöfun og nýtingu fjármuna og vera um leið traustur grundvöllur fyrir umræðu um stefnumörkun og forgangsröðun hins opinbera, samkvæmt tilkynningu.

„Markmiðið með ársskýrslunum er að fyrir liggi heildstæð og greinargóð samantekt um þróun útgjalda og mat á árangri í samanburði við sett markmið í því skyni að skýra samhengi fjármuna og stefnumótunar. Þannig verði tryggð góð yfirsýn og eftirfylgni með framgangi settra markmiða í fjármálaáætlun á einstökum málefnasviðum sem ráðherrar bera ábyrgð á.

Vakin er athygli á því að ársskýrslurnar eru birtar með fyrirvara um fjárhæðir þar sem endanlegur ríkisreikningur ársins lá ekki fyrir við gerð þeirra. Því er mögulegt að fjárhæðir í skýrslunum geti tekið einhverjum breytingum við lokafrágang ríkisreiknings og verða skýrslurnar þá uppfærðar eftir því sem við á.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus