fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Eyjan

Frítt í Hvalfjarðargöngin frá 28. september – Nákvæm tímasetning liggur ekki fyrir

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 10. september 2018 11:44

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samkvæmt tilkynningu frá Speli, sem er eigandi Hvalfjarðarganganna, verður gjaldtöku hætt þann 28. september. Verða göngin afhent Vegagerðinni þann 30. september.

Ekki liggur þó fyrir ennþá hvenær dags gjaldtökunni lýkur, en að sögn Gylfa Þórðarsonar, framkvæmdarstjóra Spalar, mun það ráðast þegar nær dregur:

„Það er nú ekki búið að ákveða það alveg, það verður væntanlega einhvern tímann á föstudeginum sjálfum. Við förum ekki að ræsa menn út á miðnætti að minnsta kosti.“

Fyrirvarar Ríkisskattsstjóra og Samgöngustofu

„Stjórn Spalar hefur tilkynnt hluthöfum félagsins þessa ákvörðun sína en tekur jafnframt fram að tímasetningin sé kynnt að þeim forsendum gefnum að Ríkisskattstjóri fallist á tiltekna meðferð á skattalegri afskrift ganganna og í öðru lagi að Samgöngustofa skili fyrirvaralausri úttekt á göngunum í aðdraganda eigendaskiptanna,“

segir í tilkynningunni.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið tilkynnti stjórn Spalar 7. maí að ríkið myndi ekki yfirtaka félögin sem eiga og reka göngin, líkt og rætt hafði verið um áður í samskiptum Spalar við fjármálaráðuneytið, fyrst á árinu 2009. Slík útfærsla á afhendingu ganganna hefur meðal annars áhrif á reikningshaldslegar afskriftir mannvirkisins.

Í júní 2018 leitaði stjórn Spalar álits Ríkisskattstjóra á hvernig fara skyldi með skattalega afskrift ganganna og hugsanlega skattlagningu Spalar á árinu 2018. Svar hefur ekki borist við erindinu en þess er vænst að viðunandi botn fáist í málið í tæka tíð svo unnt sé að afhenda göngin í lok september.

Spölur mun á næstu mánuðum gera upp við viðskiptavini sína: taka við veglyklum gegn 3.000 króna skilagjaldi, taka við og endurgreiða ónotaða afsláttarmiða og greiða út inneignir á áskriftarreikningum notenda veglykla.

Viðskiptavinir hafa frest til 30. nóvember til að skila veglyklum og afsláttarmiðum.

Áskriftarsamningar Spalar eru liðlega 20 þúsund og yfir 53 þúsund veglyklar eru í umferð.

Í ljósi þess að uppgjörsmálin skipta tugum þúsunda áskilur Spölur sér lengri frest en 30 daga til að afgreiða þau öll. Starfsfólk á skrifstofu félagsins vinnur að uppgjöri og frágangi til loka ársins og sumir fram á nýtt ár.

Spölur sendir ekki lengur út reikninga til viðskiptavina sinna vegna áskriftarferða. Þeir sem hafa nýtt alla inneignir sínar á áskriftarreikningum fá reikning í október fyrir ferðum sínum í september.

Hlutafélagið sem á og rekur Hvalfjarðargöng, Spölur, var stofnað á Akranesi 25. janúar 1991. Framkvæmdir við göngin hófust 30. maí 1996 og þau voru opnuð til umferðar 11. júlí 1998. Í lögfestum samningum var frá upphafi kveðið á um að vegfarendur greiddu fyrir göngin með veggjöldum og að Spölur myndi afhenda ríkinu mannvirkið skuldlaust..

Spölur hafði þann tilgang einan að undirbúa og sjá um framkvæmdir í Hvalfirði og eiga og reka Hvalfjarðargöng. Félaginu verður slitið 2019 og það heyrir þá farsælli sögu til.

Hluthafar Spalar eru 45 og þeirra stærstir eru:

  • Faxaflóahafnir 23,5%
  • Ríkissjóður Íslands 17,6%
  • Elkem Ísland 14,7%
  • Hvalfjarðarsveit 11,6%
  • Vegagerðin 11,6%
  • Akraneskaupstaður 8,7%.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus