fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Eyjan

FORSETAHJÓNIN TIL BORGARFJARÐAR EYSTRI, FLJÓTSDALSHÉRAÐS OG FLJÓTSDALSHREPPS

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 10. september 2018 12:54

Eliza Reid forsetafrú ásamt eiginmanni sínum

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson og frú Eliza Reid halda í opinbera heimsókn til Borgarfjarðar eystri, Fljótsdalshéraðs og Fljótsdalshrepps á morgun, þriðjudaginn 11. september. Í ferðinni munu þau heimsækja skóla, stofnanir og fyrirtæki í þessum sveitarfélögum og hitta fjölmarga íbúa þeirra að máli. Þá verður boðið til fjölskylduhátíðar í Valaskjálf á Egilsstöðum á miðvikudaginn klukkan 20:00.

Forsetahjónin hefja ferð sína á þriðjudag með því að snæða kvöldverð með íbúum á Borgarfirði eystra í Félagsheimilinu þar og fara morguninn eftir í skoðunarferð um kauptúnið og nágrenni þess. Þá verður haldið upp á Fljótsdalshérað og byrjað með hádegisfundi með íbúum Úthéraðs í Hjaltalundi klukkan hálf tólf. Að honum loknum liggur leiðin að Urriðavatni þar sem forsvarsmenn hitaveitunnar kynna starfsemi hennar og sagt verður frá áformum fyrirtækisins Vakar um ylströnd.

Því næst verður haldið að Valgerðarstöðum og skoðuð ræktun á wasabi plöntunni sem fyrirtækið Jurt stendur að. Þá taka við heimsókn í leikskólann Tjarnarskóg á Egilsstöðum og í Egilsstaðabúið þar sem Gunnar Jónsson og Vigdís Sveinbjarnardóttir taka á móti forsetahjónum.

Klukkan 20:00 hefst svo fjölskylduhátíð í Valaskjálf sem opin er öllum íbúum héraðsins og verður þar boðið upp á tónlist og fleiri skemmtiatriði; þar mun forseti einnig flytja ávarp og forsetahjón blanda geði við heimamenn. Á fimmtudaginn hefst dagskrá forsetahjóna með heimsókn í Menntaskólann á Egilsstöðum en svo skoða þau Brúnás innréttingar og halda að því loknu í hjúkrunarheimilið Dyngju.

Í hádeginu munu þau snæða hádegisverð með nemendum og kennurum í Egilsstaðaskóla. Því næst kynna hjónin sér menningarstarfsemi sem fram fer í Sláturhúsinu á Egilsstöðum, aka svo að Vallanesi og kynna sér lífræna ræktun sem þar fer fram. Að því loknu verður Hússtjórnarskólinn á Hallormsstað heimsóttur og skógrækt Skógræktar ríkisins á staðnum skoðuð. Forsetahjónin munu einnig heimsækja Óbyggðasetrið í Fljótsdal en heimsókn þeirra til Austurlands lýkur svo með síðdegiskaffi með íbúum Fljótsdalshrepps sem boðið er til klukkan hálf sex að Skriðuklaustri. 10. september 2018

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Guðjón Auðunsson: Enn sérstakt áhættuálag á Ísland hjá erlendum fjárfestum – krónan þjóðhagslegt vandamál?

Guðjón Auðunsson: Enn sérstakt áhættuálag á Ísland hjá erlendum fjárfestum – krónan þjóðhagslegt vandamál?
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Rétthugsun?

Óttar Guðmundsson skrifar: Rétthugsun?