fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Eyjan

Alþýðusamband Íslands: „Búið að greina vandann – tími aðgerða runninn upp“

Ritstjórn Eyjunnar
Föstudaginn 31. ágúst 2018 11:30

Gylfi Arnbjörnsson, fyrrverandi forseti ASÍ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Alþýðusamband Íslands segir að dregið hafi úr tekjujöfnunarhlutverki skattkerfisins og því hafi skattbyrði launafólks aukist í öllum tekjuhópum. Vísað er í skýrslu hagdeildar ASÍ um skattbyrði launafólks á tímabilinu 1998-2016.

„Fyrir ári birti hagdeild Alþýðusambandsins skýrslu um þróun á skattbyrði launafólks á síðastliðnum tveimur áratugum. Niðurstöður þeirrar úttektar voru í meginatriðum þær að skattbyrði launafólks hefur aukist í öllum tekjuhópum á tímabilinu en aukningin er langmest hjá þeim tekjulægstu. Þegar samspil tekjuskatts, útsvars og persónuafsláttar auk barna- og vaxtabóta er skoðað hefur munurinn á skattbyrði tekjulægstu hópanna og þeirra tekjuhærri minnkað og verulega dregið úr tekjujöfnunarhlutverki skattkerfisins. Þetta hefur einkum gerst vegna þess að skattleysismörk hafa ekki fylgt launaþróun á sama tíma og vaxta- og barnbætur, sem eru mikilvæg tekjujöfnunartæki, hafa verið vanræktar og markvisst dregið úr hlutverki þeirra við að jafna kjör.“

Krafa um endurskoðun skattkerfisins

„Niðurstaðan af þessu er sú að kaupmáttaraukning síðustu ára hefur síður skilað sér til launafólks með lægri tekjur en þeirra tekjuhærri vegna vaxandi skattbyrði.  Þannig hafa stjórnvöld með áherslum sínum í skattamálum unnið gegn áherslu verkalýðshreyfingarinnar á sérstaka hækkun lægstu launa í kjarasamningum og tekið til sín stóran hluta þeirra kjarabóta sem samið hefur um. Það þarf því ekki að koma sérstaklega á óvart að krafa sé um endurskoðun á skattkerfinu innan verkalýðshreyfingarinnar.“

Tími aðgerða runnin upp

ASÍ segir að boltinn sé hjá stjórnvöldum:

„Stjórnmálamenn úr flestum flokkum tóku undir áhyggjur af þróuninni í aðdraganda kosninga sl. haust og lýstu vilja sínum til breytinga. Undanfarið ár hefur verkalýðshreyfingin ítrekað bent á að það sé grundvallaratriði að snúa þessari þróun við ef takast á að ná sátt á vinnumarkaði. Búið er að greina vandann, ræða hann og kryfja til mergjar. Tími aðgerða er runninn upp. Boltinn er hjá stjórnvöldum og kominn tími til að þau sýni vilja sinn í verki og taki á þessu augljósa óréttlæti.“

 

Íterefni

Skýrsla ASÍ um skattbyrði launafólks 1998-2016

Umfjöllun ASÍ um barnabætur

Frétt ASÍ um vaxtabótakerfið

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus