fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Eyjan

Afkoma Íslandspósts versnar – Fækkun bréfasendinga kennt um

Ritstjórn Eyjunnar
Föstudaginn 31. ágúst 2018 11:04

Mynd/ARN

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samkvæmt hálfs árs uppgjöri hefur afkoma Íslandspósts versnað um 260 milljónir króna, samkvæmt tilkynningu. Er 12% fækkun bréfasendinga milli tímabila sögð ástæða slæmrar rekstrarafkomu:

„Bréfasendingum hefur fækkað mikið hér á landi á síðustu árum. Meiri en helmingi færri bréf voru send árið 2017 en 2007 og bréfum fækkar enn mikið. Þegar fyrstu sex mánuðir ársins 2018 eru bornir saman við fyrstu sex mánuði ársins 2017 kemur í ljós að 12% færri bréf voru borin út hér á landi milli ára og er það mun meiri samdráttur en spár gerðu ráð fyrir. Ef fram fer sem horfir verður metfækkun bréfa í ár. Það leiðir til þess að tekjur Íslandspósts munu dragast saman um hátt í 400 milljónir kr. Á sama tíma eykst kostnaður við bréfadreifingu vegna þess að fjölgun íbúða og fyrirtækja leiðir til þess að dreifikerfi Íslandspósts stækkar.

Árið 2018 hefur verið Íslandspósti um margt erfitt og eins og áður sagði þá er samdráttur í bréfamagni langt umfram spár. Fækkun bréfa þýðir minni tekjur sem hefur veruleg áhrif á rekstur félagsins. Íslandspóstur sinnir svokallaðri alþjónustuskyldu fyrir ríkið og hefur á móti einkarétt ríkisins á að dreifa árituðum bréfum allt að 50 grömmum. Tekjum af einkaréttarbréfunum er ætlað að greiða fyrir þá alþjónustu sem ekki stendur undir sér, s.s. dreifingu í sveitum landsins. Nú er svo komið að tekjur af einkarétti duga ekki til þar sem þær hafa dregist mikið saman með minnkandi magni. Önnur þjónusta sem fyrirtækið veitir í samkeppni hefur því verið að greiða niður hluta alþjónustunnar. Það dugar hinsvegar ekki lengur til og því hefur saxast á eigið fé Íslandspósts sem gengur ekki til lengdar.

Með minnkandi bréfamagni á undanförnum árum hefur óhjákvæmilega þurft að endurskoða þjónustuna og hafa hagræðingaraðgerðir á undanförnum árum leitt til þess að kostnaður nú er tæpum tveimur milljörðum króna lægri en raun var fyrir áratug.  Nú síðast var dreifingardögum í þéttbýli fækkað 1. febrúar sl. Vonir stóðu til að það hagræði sem af hlytist gæti leitt til lækkunar á burðargjöldum en því miður hefur samdráttur í bréfamagni orðið til þess að hækka verður verðskrá bréfa til að mæta tekjutapinu, komi annað ekki til. Þær hækkanir hefðu hins vegar þurft að vera mun meiri hefði kostnaðarlækkun vegna fækkunar dreifingardaga ekki komið til.

Ekki eru allar pakkasendingar arðbærar

Undir alþjónustuskyldu ríkisins sem Íslandspóstur sinnir fellur m.a. móttaka, meðhöndlun og dreifing á sendingum frá útlöndum. Mikil aukning hefur verið í netverslun frá útlöndum á undanförnum árum og þá sérstaklega frá Kína. Vegna óhagstæðra alþjóðasamninga þar sem Kína er flokkað sem þróunarríki fær Íslandspóstur mjög lágt gjald greitt fyrir þessar sendingar og standa þær greiðslur einungis undir litlum hluta þess kostnaðar sem fellur til við að meðhöndla þær. Mikið tap af þessum erlendu sendingum, sem Íslandi ber að sinna samkvæmt alþjóðasamningum, er stór hluti vandans við fjármögnun alþjónustunnar.

Ófjármagnaður kostnaður við alþjónustu nam um 600 milljónum kr. á síðastliðnu ári og er áætlað að hann nemi rúmum 700 milljónum kr. á árinu 2018. Með áframhaldandi fækkun bréfa benda spár póstfyrirtækja í nágrannalöndum til þess að ófjármagnaður kostnaður við alþjónustu muni aukast umtalsvert á næstu árum miðað við óbreyttar þjónustukröfur í pósttilskipun Evrópusambandsins og fyrirkomulag burðargjalda samkvæmt alþjóðasamningum. Stjórnendur Íslandspósts vinna nú að því í samvinnu við stjórnvöld að leita leiða til að tryggja fjármögnun alþjónustunnar og laga hana að breyttum forsendum. Nauðsynlegt er að niðurstaða liggi fyrir í þeim efnum á næstu mánuðum.“

 

Tengdar fréttir:

Félag atvinnurekenda fagnar sigri í slagnum gegn Íslandspósti – Gert að fækka dreifingardögum og lækka gjaldskrá

Félag atvinnurekanda grunar Íslandspóst um græsku í rekstri

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus