Þessi mynd var tekin á Arnarhóli fyrr í dag, en hún skartar félögunum Bjarna Benediktssyni fjármála- og efnahagsráðherra og Loga Bergmann fjölmiðlamanni.
„Þessir menn hafa augljóslega báðir þann frábæra kost að vera almennt séð laufléttir. Annars nennti ég ekki að hanga svona mikið með þeim,“
skrifar Svanhildur Hólm Valsdóttir, aðstoðarkona Bjarna og sambýliskona Loga, sem birtir myndina á Facebooksíðu sinni, líklega áður en hún rauk aftur til vinnu, því alkunna er að baki allra karlmanna sem slæpast er kona sem vinnur verkin.
Elliði Vignisson bæjarstjóri Ölfuss tjáir sig í athugasemdarkerfinu og bætir við mynd:
„Þegar maður sér upprunalegu myndina þá skilur maður léttleika þeirra.“
Jón Gunnar Benjamínsson, eigandi Iceland Unlimited bætir um betur og setur inn mynd af Boga og Örvari, krúttlegu rónunum sem Spaugstofan gerði ódauðlega.