fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Eyjan

Mynd dagsins: Fór sigurför um netheima – Svona tekur sænska lögreglan á móti flóttabörnum

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 15. ágúst 2018 09:00

Mynd: Facebook - Matilda Niang

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mynd dagsins er upprifjun á frétt frá árinu 2015 sem sýnir hvernig Svíar taka á móti flóttamönnum. Á henni má sjá flóttabörn í sögustund hjá sænskri lögreglukonu á gólfi aðaljárnbrautarstöðvarinnar í Malmö. Myndin fór sigurför um netheima enda ótrúlega fallegt augnablik sem þarna var fest á mynd.

Terese Lago, lögreglukona í Malmö, gaf sér tíma til að setjast hjá flóttabörnum, sem voru nýkomin til Malmö, og lesa fyrir þau. Hún sagði við fjölmiðla að lögreglumenn yrðu að sýna fagmennsku í störfum sínum með flóttamennina en það væri ekki hægt annað en að verða fyrir áhrifum af því sem fólkið hefur gengið í gegnum.

Hún sagðist hafa viljað sýna börnunum og foreldrum þeirra að sænska lögreglan væri góð. Fólkið hafi kannski þurft að þola slæma meðferð af hálfu lögreglunnar í öðrum löndum. Hún sagði einnig að dóttir hennar komi oft upp í hugann þegar hún sér lítil börn á flótta liggjandi á gólfi lestarstöðvarinnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt