Skuldastaða ríkissjóðs hefur verulega batnað undanfarin ár og eru skuldir ríkissjóðs um 32 prósent af árlegri landsframleiðslu í dag. Það þykir mjög lágt hlutfall sé horft til ríkja um allan heim. Heildar skuldir íslenska ríkisins í dag eru 858 milljarðar en voru um 1.451 milljarður árið 2013. Hafa því skuldir ríkissjóðs lækkað um 591 milljarða á þessu tímabili.
Í samtali við Morgunblaðið segir Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra að svona vel gangi að greiða niður skuldir ríkissjóðs sé vegna sölu á hlut ríkisins á Arion banka ásamt inngreiðslu á skuldabréfum ríkisins vegna bankans.