fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Eyjan

Jóhannes Kr. lofsamar Pétur í Laugalandi: „Fagna því að hann geti greitt sér arð sem nemur rúmlega 300 þúsund krónum á mánuði fyrir skatt á síðustu tíu árum“

Ritstjórn Eyjunnar
Fimmtudaginn 9. ágúst 2018 16:19

Jóhannes Kr. Kristjánsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jóhannes Kr. Kristjánsson, margverðlaunaður rannsóknarblaðamaður, tekur upp hanskann fyrir Pétur G. Broddason, sem rekur meðferðarheimilið Laugaland. Dóttir Jóhannesar lést af völdum fíkniefna árið 2010, en Jóhannes segir frá því á Facebook að dóttir sín hafi áður notið góðs af veru sinni á meðferðarheimilinu Laugalandi og að Pétur eigi alla hans virðingu skilið.

Fréttablaðið greindi frá því í morgun að Pétur hefði greitt sér 42 milljóna króna arð úr eignarhaldsfélaginu sem heldur utan um rekstur Laugalands, en allar tekjur þess koma frá ríkinu, í gegnum samstarfssamning við Barnaverndarstofu. Ásmundur Einar Daðason, velferðarráðherra, sagði það ekki eðlilegt að menn greiddu sér háan arð út úr slíkum fyrirtækjum.

Jóhannes segist fagna því að Pétri takist að reka meðferðarheimilið réttu megin við núllið:

„Ég fagna því að Pétri takist að reka meðferðarheimilið réttu megin við núllið og ég fagna því að hann geti greitt sér arð sem nemur rúmlega 300 þúsund krónum á mánuði fyrir skatt á síðustu tíu árum. Hagnaður samfélagsins er svo miklu meiri vegna hans starfa. Og þarna úti eru fjölskyldur sem eiga Pétri og hans fólki allt að þakka. Það er ómetanlegt.“

Ávinningur fyrir samfélagið

„Það birtast ekki fréttir um alla sigrana sem unnir eru á Laugalandi þar sem allt gengur út á að bjarga ungum stúlkum. Ef settur er verðmiði á eina stúlku sem útskrifast af Laugalandi og fer ekki aftur í neyslu vímuefna þá er fjárhagslegur ávinningur samfélagsins mörg hundruð milljónir króna. Hver einasti einstaklingur sem er í neyslu vímuefna kostar samfélagið mikla peninga í formi afbrota, í heilbrigðiskerfinu, löggæslu, dómsmálum, tryggingamálum, fangelsisvist og svo framvegis. Ávinningurinn fyrir samfélagið er því mikill að meðferð unga fólksins gangi vel og að viðkomandi leiðist ekki aftur í neyslu vímuefna.“

Hann ber Pétri vel söguna:

„Ég hef verið í sambandi við Pétur Broddason frá því Sissa var hjá honum í meðferð og ber mikla virðingu fyrir honum og hans mikilvæga starfi. Ég veit hvað starfið skiptir hann miklu máli og ég veit að hann stendur vaktina alla daga ársins. Pétur og starfsfólkið á Laugalandi taka við stúlkum sem koma oftar en ekki úr hrikalegum aðstæðum og eru í hrikalegu ástandi. Allt starfið á Laugalandi gengur út á það að koma stúlkunum á rétta braut og hjálpa þeim að takast á við erfiðar upplifanir úr neyslunni eða æskunni.“

Kom úr meðferðinni breytt og betri manneskja

„Það eru tíu ár síðan dóttir mín heitin hún Sigrún Mjöll útskrifaðist úr 6 mánaða vímuefnameðferð af Laugalandi í Eyjafirði. Hún kom úr meðferðinni breytt og betri manneskja með nýja sýn á alla möguleikana í lífinu. Pétur Broddason forstöðumaður Laugalands skipaði stóran sess í lífi Sissu eftir meðferðina og hún hafði samband við hann þegar hún átti erfitt eða á tímamótum hjá henni. Ég man sérstaklega eftir því þegar ég fór með henni á snjóbretti í Bláfjöllum að þá bað hún mig um að taka mynd af sér í snjóbrettagallanum með snjóbrettið og senda Pétri myndina. Hún vildi sýna honum að allt gengi vel en á Laugalandi lærði hún á snjóbretti og fór ásamt hinum stúlkunum og starfsfólki í Hlíðarfjall hvenær sem færi gafst. Sissa lærði ótalmargt á Laugalandi og utanumhaldið um hana var ótrúlega gott. Hún grét þegar hún útskrifaðist og sagðist óska þess að geta verið áfram á þessum góða stað og langaði að sækja um skólavist í VMA.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt