fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Eyjan

Býður sig fram til formanns Neytendasamtakanna: „Á þessum tímapunkti eigum við að vera óhrædd við að breyta áherslum og mála samtökin í nýjum litum“

Ritstjórn Eyjunnar
Fimmtudaginn 9. ágúst 2018 10:22

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðmundur Hörður Guðmundsson, fyrrum formaður Landverndar, hyggst bjóða sig fram til formanns Neytendasamtakanna, en þing þess fer fram 27. október næstkomandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Guðmundi.

Hann hyggstmeðal annars beita sér gegn hækkunum á neyslusköttum, ofvexti bankakerfisins og starfssemi smálánafyrirtækja, ásamt því að sýna opinberum fyrirtækjum aðahald og efla neytendaaðstoð, til dæmis hjá leigjendum:

„Þing Neytendasamtakanna fer fram 27. október næstkomandi og ég hef ákveðið að bjóða mig fram til formanns samtakanna. Neytendasamtökin hafa gengið í gegnum erfitt tímabil að undanförnu og það felur að mínu mati í sér tækifæri til að staldra við, ná áttum og endurbyggja samtökin á þeim trausta grunni sem lagður hefur verið í 65 ár. Á þessum tímapunkti eigum við að vera óhrædd við að breyta áherslum og mála samtökin í nýjum litum.

Verði ég kjörinn formaður Neytendasamtakanna mun ég leggja áherslu á eftirfarandi:

– Andstöðu við hækkanir á neyslusköttum og kröfuna um að virðisaukaskattur á matvæli verði aftur lækkaður í 7%, að lágmarki.

– Vandaða umfjöllun um kosti og galla netviðskipta og þau tækifæri sem þau veita neytendum til aukinnar samkeppni.

– Andstöðu við ofvexti bankakerfisins og óhóflegum þjónustugjöldum og vaxtagreiðslum lántakenda, m.a. í skjóli verðtryggingar.

– Stöðva starfsemi smálánafyrirtækja.

– Aðhald með opinberum fyrirtækjum og stofnunum, t.d. í tengslum við verðlag á almenningssamgöngum, lyfjum, heilbrigðisþjónustu og raforku.

– Aukið samstarf við stéttarfélög, m.a. í tengslum við verðlagseftirlit og varðstöðu um virka samkeppni.

– Aukið samstarf við háskóla, m.a. við rannsóknir á réttindamálum neytenda og efnahagsmálum.

– Virkt samstarf við samtök framleiðenda og kaupmanna um aukna og bætta upplýsingagjöf til neytenda um mat og fleiri neysluvörur, t.d. er varðar upprunamerkingar, innihaldsefni, kolefnisfótspor, dýravelferð, matarsóun, siðræna viðskiptahætti og lyfjanotkun í matvælaframleiðslu.

– Viðhalda og efla neytendaaðstoð, þar á meðal leigjendaaðstoðina og almenna lögfræðiráðgjöf.

– Efla vef samtakanna og gera þau fyrirferðarmeiri á samfélagsmiðlum.

– Fjölgun félagsmanna, m.a. með því að lækka almennt félagsgjald Neytendasamtakanna en koma um leið á styrktarkerfi sem hvetur félagsmenn og aðra til að styrkja samtökin fjárhagslega.

Reynsla og fyrri félagsstörf

Ég sat í stjórn Neytendasamtakanna 2012-2014 og í starfshópi þeirra um matvæli, umhverfismál og siðræna neyslu. Á þeim tíma tók ég m.a. virkan þátt í árangursríkri baráttu samtakanna við að fá norræna hollustumerkið Skráargatið viðurkennt á Íslandi.

Árið 2011 var ég kosinn formaður Landverndar og stýrði samtökunum í fjögur ár á miklum uppgangstíma. Undir minni stjórn tvöfölduðust tekjur félagsins, afgangur af rekstri var um tíu milljónir króna, fjölmiðlaumfjöllun tengd Landvernd tífaldaðist, vinum á Facebook fjölgaði úr 900 í 6.000 og fjöldi félagsmanna áttfaldaðist, fór úr 500 í 4.000. Sem formaður Landverndar lagði ég ríka áherslu á aukið samstarf við önnur félög og samtök og það skilaði sér m.a. í breiðri samtöðu íslenskra náttúruverndarsamtaka í Grænu göngunni 2013 og í hagsmunagæslu gagnvart stjórnvöldum og fyrirtækjum. Einnig átti Landvernd á þessum tíma frumkvæði að árangursríku samstarfi við útivistarfélög og ferðaþjónustu í baráttu fyrir vernd hálendisins og hóf samstarf við stéttarfélög um málefnalega umræðu um auðlindamál og almannarétt.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Er Gallup vanhæft í aðdraganda forsetakosninganna?

Orðið á götunni: Er Gallup vanhæft í aðdraganda forsetakosninganna?
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn