Samtala undirliða þarf ekki að koma heim við heildartölur vegna námundunar. Öryggisbil (95%), atvinnuleysi: Alls ±1,2; karlar ±1,6; konur ±2,1.
Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi var 3,4% í júní 2018
Íslenskur vinnumarkaður sveiflast reglulega milli mánaða vegna árstíðabundinna þátta. Samkvæmt árstíðaleiðréttum tölum var fjöldi fólks á vinnumarkaði 201.200 í júní 2018. Atvinnuþáttaka var því 80,9% í júní, og minnkaði um 0,2 prósentustig frá því í maí. Áætlaður fjöldi atvinnulausra í júní var samkvæmt árstíðaleiðréttingunni 6.900 eða 3,4%.
Leiðrétt hlutfall starfandi fólks í maí 2018 var 78,1%, sem er 1,6 prósentustigum lægra en það var í maí.
Niðurstöður árstíðaleiðréttingarinnar um samanburð atvinnuleysis á milli síðustu mælinga ber að taka með fyrirvara. Nokkrar sveiflur má sjá hvort tveggja í mælingunni sjálfri og í árstíðaleiðréttum tölum, sérstaklega meðal ungs fólks á aldrinum 16–24 ára. Við slíkum árstíðarbundnum sveiflum er þó að búast þar sem þessi hópur fer jafnan í atvinnuleit að vori þegar skóla lýkur. Líkanið sem unnið er með gerir ráð fyrir að í venjulegu ári sé mæling á atvinnuleysi í maí nokkru hærra en það mælist í júní. Hins vegar þá mældist atvinnuleysi nánast það sama fyrir maí og júní. Þetta hefur þau áhrif að líkanið gerir ráð fyrir lægra atvinnuleysi í maí en það var í raun.
Þrátt fyrir þennan fyrirvara þá sýnir leitni hlutfalls þeirra sem eru utan vinnumarkaðar, starfandi og atvinnuleysis síðustu sex mánaða að almennt standa vinnumarkaðstölurnar nánast í stað. Því má enn segja að íslenskur vinnumarkaður sé nokkuð stöðugur og í takti við útgefnar vinnumarkaðstölur seinustu 6 mánuði.
Framkvæmd
Vinnumarkaðsrannsóknin í júní 2018 nær til fjögurra vikna, frá 4. júní til og með 1. júlí. Í úrtak völdust af handahófi 1.535 einstaklingar á aldrinum 16–74 ára sem höfðu lögheimili á Íslandi. Þegar frá eru taldir þeir sem voru látnir eða reyndust búsettir erlendis var nettóúrtakið 1.506 einstaklingar. Alls fengust nothæf svör frá 994 einstaklingum en það jafngildir 66,0% svarhlutfalli.
Allar tölur hafa verið vegnar eftir kyni og aldri. Vikmörk mánaðarlegra niðurstaðna mælinga fyrir maí 2018 um atvinnuþátttöku eru ±2,2 prósentustig, hlutfall starfandi ±2,3 prósentustig og atvinnuleysi ±1,3 prósentustig. Allar fjöldatölur eru námundaðar að næsta hundraði.
Tafla 1. Vinnumarkaður í júní — mæling | ||||||
Öryggisbil | Öryggisbil | Öryggisbil | ||||
2016 | (±95%) | 2017 | (±95%) | 2018 | (±95%) | |
Alls 16–74 ára | ||||||
Atvinnuþátttaka | 85,2 | 2 | 85,5 | 2,1 | 84,0 | 2,2 |
Hlutfall starfandi | 83,4 | 2,2 | 83,5 | 2,2 | 81,5 | 2,3 |
Atvinnuleysi | 2,2 | 1 | 2,3 | 1,3 | 3,1 | 1,3 |
Vinnustundir | 41,9 | 1,3 | 41,6 | 1,2 | 41,6 | 1,1 |
Vinnuafl | 200.800 | 4.800 | 205.800 | 5.000 | 209.700 | 5.400 |
Starfandi | 196.400 | 5.100 | 201.100 | 5.400 | 203.200 | 5.900 |
Atvinnulausir | 4.400 | 2.000 | 4.700 | 2.200 | 6.400 | 2.700 |
Utan vinnumarkaðar | 34.800 | 4.800 | 35.000 | 5.000 | 39.800 | 5.400 |
Áætlaður mannfjöldi | 235.600 | • | 240.800 | • | 249.500 | • |
Tafla 2. Vinnumarkaður síðustu 6 mánuði — árstíðaleiðrétting | ||||||
jan.18 | feb.18 | mar.18 | apr.18 | maí.18 | jún.18 | |
Alls 16–74 ára | ||||||
Atvinnuþátttaka | 82,9 | 81,0 | 82,1 | 82,4 | 81,0 | 80,9 |
Hlutfall starfandi | 80,0 | 78,9 | 80,3 | 79,3 | 79,7 | 78,1 |
Atvinnuleysi | 3,5 | 2,6 | 2,2 | 3,7 | 1,6 | 3,4 |
Vinnustundir | 40,0 | 39,3 | 40,0 | 40,6 | 38,7 | 39,5 |
Vinnuafl | 205.200 | 200.600 | 204.600 | 203.000 | 200.900 | 201.200 |
Starfandi | 198.100 | 195.500 | 200.000 | 195.500 | 197.600 | 194.300 |
Atvinnulausir | 7.200 | 5.100 | 4.500 | 7.500 | 3.300 | 6.900 |
Utan vinnumarkaðar | 42.300 | 47.100 | 44.500 | 43.500 | 47.000 | 47.600 |
Áætlaður mannfjöldi | 247.500 | 247.700 | 249.100 | 246.500 | 247.900 | 248.800 |
Tafla 3. Vinnumarkaður síðustu 6 mánuði — árstíðaleiðrétt leitni | ||||||
jan.18 | feb.18 | mar.18 | apr.18 | maí.18 | jún.18 | |
Alls 16–74 ára | ||||||
Atvinnuþátttaka | 82,1 | 82,0 | 82,0 | 82,0 | 82,0 | 81,9 |
Hlutfall starfandi | 79,6 | 79,6 | 79,6 | 79,6 | 79,6 | 79,6 |
Atvinnuleysi | 3,0 | 3,0 | 3,0 | 2,9 | 2,9 | 2,8 |
Vinnustundir | 39,9 | 39,9 | 39,9 | 39,9 | 39,9 | 39,9 |
Vinnuafl | 202.300 | 202.500 | 202.500 | 202.600 | 202.700 | 202.700 |
Starfandi | 196.200 | 196.500 | 196.500 | 196.700 | 196.800 | 196.900 |
Atvinnulausir | 6.100 | 6.000 | 6.000 | 5.900 | 5.900 | 5.800 |
Utan vinnumarkaðar | 44.200 | 44.300 | 44.300 | 44.400 | 44.500 | 44.700 |
Áætlaður mannfjöldi | 246.500 | 246.800 | 246.800 | 247.000 | 247.200 | 247.400 |