fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Eyjan

Aukið samstarf Íslands og Japan á sviði mennta- og vísindamála

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 8. ágúst 2018 18:28

Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra og og hr. Toshiei Mizuochi, ráðherra mennta- og vísindamála Japana

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Aukin samvinna á sviði mennta- og vísindamála og málefni norðurslóða voru aðalefni fundar Lilju Alfreðsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra og hr. Toshiei Mizuochi, ráðherra mennta- og vísindamála Japana, í Reykjavík í dag.

Á fundi sínum ræddu ráðherrarnir meðal annars mikilvægi skiptináms á háskólastigi og góðra menningartengsla, jafnréttismál og möguleika þess að koma á formlegum samstarfssamningi ríkjanna á sviði tækni og vísinda en það hafa Norðmenn, Svíar og Danir þegar gert.

Í gildi eru 34 samstarfssamningar milli íslenskra háskóla og háskóla í Japan en íslenskir og japanskir vísindamenn hafa sameiginlega birt um 300 vísindagreinar, m.a. á sviði erfðafræði, jarðfræði, stærðfræði, tölvunarfræði, stjörnufræði og eðlisfræði.

„Japanir hafa sýnt því mikinn áhuga að við aukum samstarf okkar á sviði vísinda- og tæknimála, einkum er varðar málefni norðurslóða og þar eru sannarlega mörg spennandi sóknarfæri. Íslensk stjórnvöld eiga í góðu samstarfi við Japani um ýmis málefni, til dæmis á vettvangi Norðurskautsráðsins þar sem Ísland mun taka við formennsku næsta vor. Þar hafa Japanir átt áheyrnarfulltrúa sl. fimm ár en innan ráðsins er vilji til þess að styrkja og dýpka samstarf og þátttöku áheyrnarríkja,“

sagði Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra að fundi loknum.

Kveðið er á um mikilvægi norðurslóða í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar og eru málefni þeirra forgangsmál í íslenskri utanríkisstefnu. Á vettvangi Norðurskautsráðsins leggur Ísland sérstaka áherslu á loftslagsmál, málefni hafsins og þátttöku og velferð íbúa á norðurslóðum en aukin alþjóðasamvinna á sviði rannsókna og vöktunar á svæðinu skiptir lykilmáli svo stjórnvöld geti brugðist sem best við þeim áskorunum sem við blasa á þeim vettvangi.

Þess má geta að Japanska heimskautarannsóknastofnunin rekur rannsóknarstöðvar á Suðurskautinu og á Svalbarða sem og ómannaðar norðurljósarannsóknarstöðvar á Tjörnesi og í Húsafelli.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Varaþingmaður Samfylkingarinnar yfirgefur flokkinn – Segir Samfylkinguna hafa sofnað á mannréttindavaktinni

Varaþingmaður Samfylkingarinnar yfirgefur flokkinn – Segir Samfylkinguna hafa sofnað á mannréttindavaktinni
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Óæskilegt lesefni

Óttar Guðmundsson skrifar: Óæskilegt lesefni
Eyjan
Fyrir 6 dögum

800 milljóna halli en þokast í rétta átt

800 milljóna halli en þokast í rétta átt
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Þorsteinn Siglaugsson skrifar: Gervigreind og máttur tungumálsins

Þorsteinn Siglaugsson skrifar: Gervigreind og máttur tungumálsins