„Er til of mikils ætlast af kjörnum fulltrúum okkar og stjórnmálamönnum almennt að tala um hlutina eins og þeir eru í stað þess að fyrra sig allri ábyrgð með málflutningi sem stenst enga skoðun? Hvernig væri að ræða þessi mál af auðmýkt og virðingu í stað þess að vera í pólitískum skotgröfum og svara réttmætri gagnrýni með hroka og yfirlæti. Þá komumst við vonandi eitthvað áfram með að leysa málin,“
segir Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, í gagnrýni sinni á meirihlutann í borgarstjórn Reykjavíkur er varðar húsnæðismál. Hann tókst á við Heiðu Björg Hilmisdóttur, borgarfulltrúa Samfylkingarinnar í Vikulokunum á Rás 2 fyrir helgi. Hann dró þar í efa að um 1000 íbúðir væru í byggingu á vegum óhagnaðardrifinna leigufélaga, líkt og Gunnar Smári Egilsson tók undir í dag.
„Það er stór munur á því hvað er í byggingu, skipulagi og úthlutun. Með þessari gagnrýni vil ég alls ekki gera lítið úr því sem verið er að gera en vildi undirstrika hversu hrikalegt ástandið er á húsnæðismarkaði og hversu mikla ábyrgð stærsta sveitarfélag landsins ber á vandanum.
Það gerir ekkert minna úr ábyrgð annarra sveitarfélaga eða stjórnvalda á vandanum. Ég stend við að mér finnst dapurlegur málflutningur að hreykja sér yfir árangri sem er lítið annað en þjóðarskömm. Þetta er ekki vandi sem varð til yfir nótt heldur afleiðing áralangrar vanrækslu. Þar er ekkert stjórnvald undanskilið gagnrýni.“
Ragnar Þór segir undarlegt að hreykja sér af byggingu 1000 íbúða, meðan þörfin sé töluvert meiri:
„Að tala um og hreykja sér af 1.000 íbúðum í einhverju ferli á meðan uppsöfnuð þörf í ársbyrjun 2017 var 6.000 íbúðir og árleg þörf til viðbótar frá þeim tíma um 2.200 íbúðir á ári fram til ársins 2040 samkvæmt greiningu Íbúðalánasjóðs ? Einnig sýna útreikningar leigufélags VR sem hafa farið í yfirlestur hjá Deloitte að byggingakostnaður hefur svo sannarlega áhrif á leiguverð óhagnaðardrifinna leigufélaga. Samkvæmt okkar útreikningum og leigufélagsmódeli VR hækkar byggingaréttargjaldið leigu á 100fm.íbúð um 200 þúsund á ári. Samkvæmt útreikningum Bjarg þá hækkar leiga meðalíbúða um c.a. 20.000 kr. á mánuði. Útborguð lágmarkslaun eru 248.000kr. á mánuði. Verð á tveggja herbergja íbúðum eru auglýstar til leigu á 250.000 kr. á mánuði og einstaklingar greiða yfir 100.000 kr. á mánuði fyrir herbergi í ósamþykktu iðnaðarhúsnæði með aðgang að sameiginlegu klósetti og eldunaraðstöðu sem er álíka mikið og greitt er fyrir raðhús í Bergen í Noregi.“
segir Ragnar Þór.