fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Eyjan

Davíð hvetur fólk til að róa sig: „Það er alger óþarfi að brjálast“

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 1. ágúst 2018 09:20

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Það er mikilvægt að hafa í huga að það er ekki hægt að pakka landi niður og fara með það annað,“ segir Davíð Þorláksson, lögfræðingur og forstöðumaður hjá Samtökum atvinnulífsins.

Davíð skrifar bakþanka Fréttablaðsins í dag og gerir þar fjárfestingar erlendra aðila í landi að umtalsefni. Nokkuð hefur verið rætt og ritað um það að undanförnu og sitt sýnist hverjum. Hafa margir áhyggjur af því að Ísland sé hægt og bítandi að komast í eigu erlendra aðila.

Davíð hvetur fólk hins vegar til að róa sig og segir í raun að engin ástæða sé til að hafa áhyggjur.

„Einhverjir stjórnmálamenn voru ekki lengi að ríða fram á völlinn og krefjast þess að hið opinbera gripi í taumana. Til dæmis er lagt til að hinu opinbera verði veittur forkaupsréttur að landi. Stjórnmálamenn eru oft eins og ráðríkir foreldrar sem eiga erfitt með sleppa takinu af uppkomnum börnum,“ segir Davíð sem bendir á að innlendir jafnt sem erlendir landeigendur þurfi að fara að hinum ýmsu lögum og reglum sem gilda hér á landi.

„Þar má t.d. nefna skipulagslög nr. 123/2010, lög um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000, lög um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu nr. 57/1998, lög um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum nr. 64/1994, lög um lax- og silungsveiði nr. 61/2006 og svo fjölda reglugerða sem hafa verið settar á grundvelli þessara laga.“

Davíð segir að þó að einhver eigi land geti hann ekki ráðskast með það að vild.

„Það er því alger óþarfi að brjálast. Þótt einhver eigi land getur hann ekki gert það sem honum sýnist með það. Og auðvitað skiptir engu máli hvort það er Íslendingur eða útlendingur sem á það. Það er líka tímabært að stjórnmálamenn átti sig á því að eignarréttur er ekki stjórntæki sem þeir geta gripið til að vild. Til þess eru lög og eins og sjá má hér að ofan þá er nóg til af þeim fyrir hið opinbera til að grípa til.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt