Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið hefur kallað eftir umsögnum um drög að nýju frumvarpi til umferðarlaga. Drögin taka mið af þeim athugasemdum sem komið hafa fram í fyrra samráði, en frumvarp til nýrra umferðarlaga hefur verið lagt fjórum sinnum fram á Alþingi, síðast árið 2013.
Töluvert af ábendingum og athugasemdum hafa borist ráðuneytinu frá síðustu umsagnarhrinu, m.a. vegna hjólreiða og breyttra samgönguhátta, aukinnar sjálfvirkni bíla, stöðubrota, sektarheimilda lögreglu, vegaeftirlits og notkun farsíma- og snjalltækja svo að dæmi séu nefnd.
Ýmsar nýjar breytingar gætu því litið dagsins ljós, verði þær samþykktar á Alþingi í haust. Miða þær einkum að hertum reglum og skýrari ákvæðum, ásamt hærri sektum. Frumvarpið hefur þegar vakið hörð viðbrögð hjá ferðaþjónustunni, þar sem skráðir eigendur ökutækja eru gerðir ábyrgir fyrir sektum ökumanns, til dæmis úr hraðamyndavélum, óháð því hver er ökumaður. Það þýðir að bílaleigurnar þurfa að greiða fyrir hraðasektir erlendra ferðamanna, þar sem erfitt getur reynst að ná aurnum af þeim þegar þeir eru farnir úr landi:
„Okkar áhyggjur stafa fyrst og fremst af því að það er bílaleigunum erfitt, nær ómögulegt, að innheimta sektina hjá þeim brotlega. Menn halda stundum að bílaleigur geti rukkað sektina eftir á af korti leigutaka en kortaskilmálar gera það að verkum að sá getur hafnað henni. Við teljum óeðlilegt að bílaleigur séu gerðar ábyrgar fyrir hegðun sinna kúnna og sitji uppi með kostnað sem þær hafa ekki möguleika á að innheimta,“
sagði Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka aðila ferðaþjónustunnar við Fréttablaðið í dag.
Hér má sjá frumvarpið í heild sinni, en hér að neðan eru birt nokkur atriði sem almenningur gæti þurft að hafa hugfast í náinni framtíð:
Þá er loksins búið að skýra út hvernig haga eigi akstri inn í hringtorg, en almenningur virðist ekki alltaf vera með það á hreinu:
„Ökumaður sem ekur að hringtorgi skal veita þeim sem eru í torginu forgang. Í hringtorgi sem skipt er í tvær akreinar skal ökumaður velja hægri akrein, ytri hring, ætli hann að aka út úr hringtorginu á fyrstu gatnamótum. Ökumaður á ytri hring skal veita þeim sem ekur á innri hring forgang út úr torginu. Óheimilt er að skipta um akrein við hringtorg eða á milli ytri og innri hrings í hringtorgi.“