„Hýsum Íslendinga, ekki hælisleitendur!“ segir á veggspjöldum og límmiðum sem dreift hefur verið í Hlíðunum og í vesturbæ Reykjavíkur af Norrænu mótstöðuhreyfingunni, sem er samnorrænt bandalag nýnasista. Þrír meðlimir samtakanna í Svíþjóð sitja í fangelsi vegna sprengjuárásar í Gautaborg. Stundin greinir frá.
Á heimasíðu hreyfingarinnar, nordurvigi.is segir að um 200 eintökum hafi verið dreift og 10 veggspjöld hengd upp . Áróðurinn er sagður „vegna skandals sem átti sér stað fyrir skemmstu“ þar sem vísað er til fréttar Vísis um áhyggjufulla íbúa í Stigahlíð vegna aðbúnaðar í húsi fyrir hælisleitendur, en sérsveit lögreglu hefur þurft að hafa afskipti af íbúum hússins.
Á heimasíðunni er sagt að að sökum húsnæðisskorts og hárrar leigu séu íslendingar á vergangi og öryrkjar þurfi að búa í tjöldum.
Þá er spurt hvort ríkisstjórnin sé and-íslensk, vegna þess hvernig fjárveitingar til hælisleitenda hafi hækkað og Rauði krossinn er sagður „græða“ á ástandinu vegna samnings við ríkið um þjónustu við hælisleitendur.
Þá hvetja samtökin til þess að Norðurlöndin sameinist um stofnun eins ríkis til frambúðar:
„Landsmenn! Við hjá Norrænu mótstöðuhreyfingunni erum norræn samtök starfandi í Svíþjóð, Noregi, Finnlandi, Danmörku og hér á landi. Við teljum að öll norðurlöndin eigi að standa saman og sameinast og stofna eitt sterkt ríki til frambúðar, að þau eigi að standa saman gegn vá fjölmenningarhyggjunnar, innrás hælisleitenda og yfirgangi stjórnvalda gegn sínum eigin þegnum. Nú er tíminn, nóg er löngu orðið nóg. Fólkið þitt þarfnast þín.“
Ekki er getið þess hver er í forsvari fyrir vefinn, en samkvæmt Stundinni er vefurinn skráður hjá félaginu Icenetworks ltd. og skráð í Belís í Mið-Ameríku.
Samkvæmt 8. grein lögreglusamþykktar Reykjavíkurborgar er bannað að festa auglýsingar á mannvirki, nema með leyfi eigenda eða umráðamanns.