fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Eyjan

Kári tekur Bjarna Ben á beinið: „Þú verður að gera þér grein fyrir því að þú vinnur ekki störukeppni við ljósmæður“

Ritstjórn Eyjunnar
Föstudaginn 6. júlí 2018 08:50

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, skrifar grein í Fréttablaðið í dag hvar hann gagnrýnir Bjarna Benediktsson, fjármálaráðherra, fyrir þau gögn sem birtust á vefsíðu ráðuneytisins fyrr í vikunni og hafa valdið nokkrum usla meðal ljósmæðra í kjaradeilu þeirra við ríkið:

„Bjarni, á þriðjudaginn birtist stuttur pistill á heimasíðu fjármálaráðuneytisins vegna fjölmiðlaumfjöllunar um kjör ljósmæðra. Pistillinn er í símskeytastíl og er greinilega ætlað að sýna okkur fram á að við Íslendingar gerum býsna vel við ljósmæður. Ég er feginn því að þú berð ábyrgð á honum en ekki ég,“

segir Kári og gerir athugasemd við þá tölfræðiframsetningu sem sýnir fjölgun á stöðugildum ljósmæðra í samanburði við fækkun fæðinga:

„Þriðja málsgreinin í pistlinum bendir á að á síðasta áratug hafi stöðugildum ljósmæðra á Íslandi fjölgað um 33% en fæðingum fækkað um rúm 8%. Við eigum sjálfsagt að draga þá ályktun að afkastageta ljósmæðranna okkar hafi minnkað í einhvers konar hlutfalli við vaxandi frekju þeirra. Þetta bréf mitt til þín skrifaði ég vegna þess að þú ert drengur góður og ég er viss um að þér eru ekki kunnugar eftirfarandi staðreyndir, annars myndirðu ekki láta svona.“

Kári fer síðan yfir þann mikla árangur sem náðst hefur í baráttunni við ungbarnadauða hér á landi og hvernig ljósmæður eigi heiðurinn af þeirri baráttu. Í lokin biðlar hann til Bjarna að meta framlag ljósmæðra, í stað þessa að hrekja þær í flugfreyjustörf:

„Bjarni, þú hlýtur að hafa þetta allt í huga þegar þú metur framlag þeirra til íslensks samfélags. Staðreyndin er svo sú að á meðan stöðugildum ljósmæðra hjá ríkinu hefur fjölgað um 33% og fæðingum hefur fækkað um meira en 8% hafa viðfangsefni ljósmæðra orðið flóknari með ári hverju, konur eignast börn sín eldri, og þyngri, sem fylgir aukin tíðni meðgönguvandamála, og ýmislegt af því sem áður var á höndum lækna hefur flust yfir á þær.

Bjarni, þú verður að gera þér grein fyrir því að þú vinnur ekki störukeppni við ljósmæður. Það eina sem hefur áunnist með tilraun þinni til þess er að hrekja stóran hóp þeirra í flugfreyjustörf og fleiri eru á leiðinni. Sú hætta er fyrir hendi að afleiðingin verði löskuð börn og aukinn ungbarnadauði. Ég veit fyrir víst að þú ert mér og öllum öðrum Íslendingum sammála um að slíkt sé óásættanlegt. Þess vegna ráðlegg ég þér að bjóða þeim betur, vegna þess að aðrar stéttir munu ekki nota þær sem fordæmi, til þess er framlag þeirra til velferðar í samfélagi okkar of sérstakt.“

 

Gríðarlegur árangur í baráttunni gegn ungbarnadauða

Kári nefnir í grein sinni að ungbarnadauði á Íslandi um miðja síðustu öld hafi verið „með ólíkindum“ og einhver sá hæsti í mannkynssögunni, eða 238 börn af hverjum þúsund fæddum. Í dag sé hann hinsvegar hundrað sinnum minni og sá lægsti í heimi, eða 2 börn af hverjum þúsund.

„Það er ólýsanlegur harmurinn foreldra þegar börn þeirra deyja og ekki síst þegar þau deyja ung. Afleiðingar harmsins eru margvíslegar og meðal annars þær að lífslíkur foreldranna minnka og þá sérstaklega mæðra. Þær lifa nokkrum árum skemur fyrir vikið. Sagnfræðingar og félagsfræðingar hafa sett fram þá kenningu að mæður á öldum áður hafi verndað sig fyrir afleiðingum mikils ungbarnadauða með því að tengjast ekki nýfæddum börnum sínum sterkum böndum. Rannsóknir okkar og annarra sýna fram á að þetta er rangt vegna þess að lífslíkur mæðra á þeim tíma sem ungbarnadauðinn var mestur í landinu minnkuðu við barnsmissi til jafns á við það sem gerist í dag.

Móðurástin er ekki smíðuð í konuna. Það verður ekki við hana ráðið. Hún er meðfædd. Síðan er móðurástin eitt af mikilvægustu hreyfiöflum samfélags manna. Hún kemur börnum á legg. Hún býr til konur og menn til þess að taka við landinu. Prísinn sem móðirin borgar fyrir þessa ást sem býr til samfélög er hættan á harminum mikla ef hún missir barn sitt. Það er því skylda okkar sem samfélags að gera allt sem í okkar valdi stendur til þess að það gerist ekki. Þannig launum við móðurinni sem samfélag fyrir ástina sem bjó okkur til.

Sú staðreynd að ungbarnadauði er minni á Íslandi en annars staðar bendir til þess að við séum að þessu leyti að standa í nokkuð góðum skilum við mæður. Þetta á meðal annars rætur sínar í því að ljósmæðurnar okkar skoða verðandi mæður, taka á móti börnum við fæðingu og hafa eftirlit með mæðrum og börnum að fæðingu lokinni. Þær þurftu ekki að komast upp úr riðli og lifa af útsláttarkeppni til þess að sanna fyrir okkur að þær séu heimsmeistarar. Í þeirra tilfelli gildir gamla slagorð Silla og Valda að af ávöxtunum skuluð þið þekkja þær. Börnin okkar lifa frekar en börn annarra þessa erfiðu ferð inn í harðan heim.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“