fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Eyjan

EES innleiðingarhalli Íslands ekki minni frá 2010

Ritstjórn Eyjunnar
Föstudaginn 6. júlí 2018 08:25

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dregið hefur umtalsvert úr innleiðingarhalla tilskipana og reglugerða sem falla undir EES samninginn og er hann í tilviki Íslands sá minnsti frá árinu 2010. Þetta er niðurstaða 42. frammistöðumats Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA), sem sýnir stöðu innleiðingar á EES gerðum í EFTA ríkjunum, Íslandi, Liechtenstein og Noregi. Staðfestir þessi niðurstaða sterka áherslu ríkjanna á greiða framkvæmd EES samningsins. Ríkin eru hvött til þess að halda áfram á þessari braut.

„Þessi mikli árangur í að draga úr innleiðingarhalla tilskipana og reglugerða á Íslandi, sem og í öðrum EFTA ríkjum, lýsir vel traustu samstarfi EFTA ríkjanna og vilja þeirra til þess að vinna saman að öflugum innri markaði,“

segir Högni Kristjánsson, stjórnarmaður ESA.

Frammistöðumatið sýnir einnig að:

  • Verulega dregur úr innleiðingarhalla bæði tilskipana og reglugerða í tilviki Íslands. Innleiðingarhalli tilskipana er 1 prósent samanborið við 1,8 prósent í síðasta frammistöðumati og hefur ekki verið mini frá nóvember 2010. Innleiðingarhalli reglugerða er 0,8 prósent samanborið við 1,2 prósent áður sem er að sama skapi sá lægsti frá árinu 2016 þegar ESA birti slíkar tölur í fyrsta sinn.
  • Í tilviki Noregs dregur á ný úr innleiðingarhalla tilskipana sem er aðeins 0,1 prósent samanborið við 0,5 prósent áður. Innleiðingarhalli reglugerða er nú 1,1 prósent en var 0,1 prósent áður.
  • Að sama skapi dregur úr innleiðingarhalla í Liechtenstein en 0,7 prósent tilskipana hafa ekki verið innleiddar samanborið við 1,3 prósent  áður.

Síðar í sumar mun Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins birta frammistöðumat ríkja Evrópusambandsins. Uppfærð útgáfa frammistöðumats ESA, með samanburði við öll ríki EES svæðisins, verður birt á sama tíma.

Nálgast má frammistöðumatið (á ensku) hér: Frammistöðumat innri markaðar nr. 42

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Er Gallup vanhæft í aðdraganda forsetakosninganna?

Orðið á götunni: Er Gallup vanhæft í aðdraganda forsetakosninganna?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn