fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Eyjan

Samskip í nýja höfn í Bretlandi

Ritstjórn Eyjunnar
Fimmtudaginn 5. júlí 2018 16:15

Flutningaskip Samskipa affermt í Hull í Bretlandi. (Mynd/Samskip)

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrir dyrum stendur flutningur á viðkomustað Samskipa á Bretlandseyjum. Þann 16. júlí næstkomandi fara flutningar Samskipa um Hull í stað Immingham áður, samkvæmt tilkynningu.

Samskip eru stærsti viðskiptavinur hafnarinnar í Hull, en þar munu nú mætast siglingar til og frá Íslandi og flutningakerfi Samskipa í Evrópu. Samskip flytja á ári hverju yfir 100 þúsund gámaeiningar um höfnina í Hull. Höfnin er þannig næst umsvifamesta höfn Samskipa á eftir Rotterdam.

Guðmundur Þór Gunnarsson, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Samskipa.

„Höfnin í Hull býður viðskiptavinum sínum afbragðs aðstöðu og þjónustu, sem kemur viðskiptavinum okkar til góða. Breytingin leiðir af sér styttri viðkomutíma skipa og þar með bætta þjónustu við viðskiptavini okkar,“

segir Guðmundur Þór Gunnarsson framkvæmdarstjóri rekstrarsviðs Samskipa.

 

Skammt er á milli hafnanna í Hull og Immingham

Engin breyting verður á móttöku lausavöru enda skammt á milli hafnanna í Hull og Immingham. Vöruhús Samskipa verður því áfram á sama stað og áður.

„Við breytinguna finna viðskiptavinir okkar fyrst og fremst fyrir hærra þjónustustigi. Annað er óbreytt,“

segir Guðmundur Þór.

Rekja má sögu hafnarviðskipta í Hull allt aftur á þrettándu öld. Það var hins vegar 1773 sem Hull Dock Company var stofnað og fyrsta höfnin var byggð. Þar hefur því verið hafnarstarfsemi óslitið í 245 ár. Núna er höfnin í eigu Associated British Ports og um hana fara samkvæmt nýjustu tölum um 9,3 milljónir tonna af varningi á ári hverju.

Með þessum breytingum tengjast áætlanasiglingar Samskipa til og frá Íslandi nú við flutningakerfi Samskipa í Evrópu um tvær lykilhafnir, Hull og Rotterdam. Breytingarnar opna þannig á nýjar tengingar fyrir viðskiptavini félagsins á Íslandi við flutningakerfi Samskipa í Evrópu.

 

Um Samskip

Samskip eru alþjóðlegt flutningafyrirtæki sem býður flutningalausnir og tengda þjónustu á landi, sjó og í lofti með hagkvæmni og sjálfbærni að leiðarljósi. Samskip bjóða upp á heildarþjónustu á Íslandi og í Færeyjum, fjölþátta gámaflutningsþjónustu um alla Evrópu, og frystiflutninga og flutningsmiðlun um allan heim. Félagið starfrækir skrifstofur í yfir 20 löndum í fimm heimsálfum. Starfsmenn er um 1.300.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Guðjón Auðunsson: Enn sérstakt áhættuálag á Ísland hjá erlendum fjárfestum – krónan þjóðhagslegt vandamál?

Guðjón Auðunsson: Enn sérstakt áhættuálag á Ísland hjá erlendum fjárfestum – krónan þjóðhagslegt vandamál?
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Rétthugsun?

Óttar Guðmundsson skrifar: Rétthugsun?