fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Eyjan

Fjármálaráðuneytið: Meðalheildarlaun ljósmæðra 848 þúsund á mánuði

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 3. júlí 2018 15:45

Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur birt ýmsar tölulegar upplýsingar um laun ljósmæðra á vef sínum. Er tilefnið sagt fjölmiðlaumfjöllun undanfarinna daga og því vilji ráðuneytið „vekja athygli“ á birtum upplýsingum.

Af lestri gagnanna mætti ætla að ráðuneytið væri að reyna hafa áhrif á almenningsálitið í kjaradeilunni við ljósmæður.

Meðal þeirra upplýsinga sem ráðuneytið telur mikilvægt að komi fram, er að meðalheildarlaun ljósmæðra fyrir fullt starf árið 2017 hafi verið 848 þúsund krónur á mánuði og að meðaldagvinnulaun hafi verið 573 þúsund krónur á mánuði.

Þá er tekið fram að stöðugildum ljósmæðra hafi fjölgað um 33% milli 2007 og 2017, meðan fæðingum hafi fækkað um 8%.

Þá er tilgreint að ljósmæður hafi fengið 16% hækkun umfram önnur félög BHM árið 2008 og hafi frá þeim tíma fengið sömu hækkanir og önnur BHM-félög.

 

1. Á árinu 2017 störfuðu að meðaltali 252 ljósmæður hjá ríkinu í 172 stöðugildum.
2. Meðalstarfshlutfall ljósmæðra hjá ríki árið 2017 var 69%. Um 14% ljósmæðra eru í fullu starfi.
3. Á tímabilinu 2007 til 2017 hefur stöðugildum ljósmæðra hjá ríkinu fjölgað um 33% en fæðingum fækkað um rúm 8%. Á mynd 1 má sjá þróun fjölda stöðugilda ljósmæðra og fjölda fæðinga á árunum 2007-2017.
4. Árið 2008 fengu ljósmæður 16% hækkun umfram önnur BHM-félög sem leiðréttingu vegna viðurkenningar á aukinni menntun. Frá þeim tíma hafa ljósmæður fengið sömu hækkanir og önnur BHM-félög.
5. Meðaldagvinnulaun ljósmæðra miðað við fullt starf árið 2017 voru 573 þús. kr. Á mynd 2 má sjá þróun vísitölu dagvinnulauna ljósmæðra í samanburði við launavísitölu og samanburðarstéttir.
6. Meðalheildarlaun ljósmæðra fyrir fullt starf árið 2017 voru 848 þús. kr. á mánuði. Á mynd 3 má sjá þróun heildarlauna ljósmæðra samanborið við samanburðarstéttir og í töflu 1 má sjá samanburð á meðaldagvinnu- og heildarlaunum BHM-félaga 2017.

 

Mynd 1. Stöðugildi ljósmæðra og fjöldi fæddra, tímabilið 2007 – 2017. Fjöldi fæðinga er meðalfjöldi fæðinga á mánuði og stöðugildi er meðalfjöldi stöðugilda á mánuði.

 

Mynd 2. Þróun dagvinnulauna 2007-2017

 

Mynd 3. Þróun heildarlauna 2007-2017

 

 

Tafla 1. Samanburður á meðallaunum BHM-félaga 2017

Meðallaun BHM fyrir árið 2017 Dagvinnulaun Heildarlaun
BHM 607.515 717.969
Félag prófessora við ríkisháskóla 845.350 929.014
Ljósmæðrafélag Íslands 573.019 848.224
Kjarafélag viðskipta- og hagfræðinga 665.881 834.880
Félag geislafræðinga 534.808 804.985
Dýralæknafélag Íslands 644.882 804.575
Félag lífeindafræðinga 529.648 790.451
Stéttarfélag lögfræðinga 650.892 785.413
Félag háskólamenntaðra starfsmanna stjórnarráðsins. 659.241 777.805
Félag háskólakennara á Akureyri 615.105 727.320
Félag íslenskra félagsvísindamanna 624.557 723.082
Fræðagarður 577.722 670.295
Sálfræðingafélag Íslands 590.715 660.586
Félag íslenskra náttúrufræðinga 558.198 639.280
Stéttarfélag bókasafns- og upplýsingafræðinga 570.432 626.051
Félag háskólakennara 556.055 621.256
Stéttarfélag íslenskra félagsráðgjafa 560.413 618.087
Stéttarfélag sjúkraþjálfara 514.259 587.396
Leikarafélag Íslands 502.364 570.631
Þroskaþjálfafélag Íslands 479.912 570.323
Iðjuþjálfafélag Íslands 508.040 543.069

 

Samninganefnd ríkisins hefur sem fyrr fullt umboð frá fjármálaráðherra og ríkisstjórn í samningaviðræðum við ljósmæður. Það er einlægur vilji stjórnvalda að ljúka deilunni eins fljótt og kostur er.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Thomas Möller skrifar: Ísland á heima í ESB

Thomas Möller skrifar: Ísland á heima í ESB
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Stálin mættust stinn í gær – „Niðurstaðan af hvoru tveggja er að borgin er stjórnlaus“

Stálin mættust stinn í gær – „Niðurstaðan af hvoru tveggja er að borgin er stjórnlaus“