fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Eyjan

Ný bæjarstjórn tekin við í Hafnarfirði

Ritstjórn Eyjunnar
Fimmtudaginn 21. júní 2018 08:32

Mynd; Lárus Karl Ingason

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á fundi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar sem lauk í gærkvöldi, var lagður fram samstarfssáttmáli nýs meirihluta bæjarstjórnar Hafnarfjarðar 2018 – 2022 og kosið í ráð og nefndir á vegum bæjarins. Ágúst Bjarni Garðarsson var kjörinn formaður bæjarráðs og Kristinn Andersen forseti bæjarstjórnar. Þá var Rósa Guðbjartsdóttir, fráfarandi formaður bæjarráðs, ráðin bæjarstjóri og kemur hún til starfa í dag 21. júní.

Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar og óháðra hafa gert með sér sáttmála um myndum meirihluta bæjarstjórnar, sem ber yfirskriftina „Bætt þjónusta, betri bær“. Í sáttmálanum kemur fram að áhersla sé lögð „á málefni fjölskyldunnar, eldri borgara og skilvirka þjónustu í þágu íbúa og fyrirtækja.“ Hér má lesa sáttmálann í heild sinni.

Rósa Guðbjartsdóttir nýr bæjarstjóri hlakkar til að takast á við þau verkefni sem framundan eru og líst vel á það meirihlutasamstarf sem nú er hafið.

„Við sitjum hér í umboði bæjarbúa, markmið okkar eru skýr og við munum hefjast handa strax. Ætlunin er að efla skilvirkni sveitarfélagsins og bæta þjónustuna við bæjarbúa. Við ætlum að gera Hafnarfjörð enn betri.“
Ágúst Bjarni Garðarsson formaður bæjarráðs tekur undir þetta með Rósu:
„Við erum að boða ákveðna framtíðarsýn, hvernig við getum gert góðan bæ enn betri. Þar erum við að leggja áherslu á málefni barnafjölskyldna, eldri borgara og húsnæðismál. Það er meginstefið í þessum málefnasamningi milli flokkanna,“
segir Ágúst Bjarni.
 
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Hartman í Val
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Guðjón Auðunsson: Áhyggjur af því að áhrif vaxtahækkana eigi eftir að bíta almenning alvarlega

Guðjón Auðunsson: Áhyggjur af því að áhrif vaxtahækkana eigi eftir að bíta almenning alvarlega
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Jón Gnarr: Forseti tali íslensku á alþjóðavettvangi – íslenskan á að fá að hljóma

Jón Gnarr: Forseti tali íslensku á alþjóðavettvangi – íslenskan á að fá að hljóma
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Lýsa vantrausti á ríkisstjórnina, krefjast þingrofs og nýrra kosninga

Lýsa vantrausti á ríkisstjórnina, krefjast þingrofs og nýrra kosninga
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Mannréttindadómstóll Evrópu slær á puttana á íslenska ríkinu – Brutu gegn rétti til frjálsra kosninga

Mannréttindadómstóll Evrópu slær á puttana á íslenska ríkinu – Brutu gegn rétti til frjálsra kosninga
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: ESB er miklu meira en sameiginlegur markaður og evran

Ole Anton Bieltvedt skrifar: ESB er miklu meira en sameiginlegur markaður og evran
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Gamli kanslarinn vill fá skrifstofuna sína aftur – Ekki líklegt að það gangi eftir

Gamli kanslarinn vill fá skrifstofuna sína aftur – Ekki líklegt að það gangi eftir
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sögusagnir sem borgin vísaði á bug eiga sér meiri stoð í raunveruleikanum en af er látið

Sögusagnir sem borgin vísaði á bug eiga sér meiri stoð í raunveruleikanum en af er látið
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Fylgið minnkað um helming – 40 þúsund vantreysta Bjarna sem sætir afarkostum VG

Orðið á götunni: Fylgið minnkað um helming – 40 þúsund vantreysta Bjarna sem sætir afarkostum VG