fbpx
Föstudagur 03.maí 2024
Eyjan

Stuðningsfólk Miðflokks bjartsýnast fyrir Íslands hönd á HM – Kjósendur Pírata og Samfylkingar neikvæðastir

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 18. júní 2018 15:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þegar litið er til stjórnmálaskoðana þeirra sem tóku þátt í könnun MMR um gengi karlalandsliðsins í knattspyrnu á HM  má sjá nokkurn breytileika á afstöðu svarenda. Stuðningsfólk Miðflokks var líklegast til að telja íslenska landsliðið líklegt til afreka í D-riðli en 79% þeirra spáðu liðinu áframhaldandi þátttöku eftir riðlakeppni.

Stuðningsfólk Viðreisnar (13%) var líklegast til að spá liðinu áfram í 8 liða úrslit keppninnar, stuðningsfólk Miðflokks (18%) var líklegast til að spá strákunum okkar þátttöku í undanúrslitum og stuðningsfólk Pírata (4%) var bjartsýnast á að íslenska liðið tæki silfur í keppninni.

Stuðningsfólk Flokks fólksins (7%) var hins vegar líklegast allra til að telja að Íslendingar munu fara með sigur af hólmi í úrslitaleik keppninnar. Rétt er að nefna að tæp 4% svara bárust eftir að leik Íslands og Argentínu lauk.

Svartsýnastir eru stuðningsmenn Pírata, en 49% þeirra telja að Ísland komist ekki upp úr riðlinum. Það sama segja 48% þeirra sem kusu Samfylkinguna.

 

1806 HM x v3

 

 

1806 HM

Spurt var: „Hversu langt heldur þú að íslenska landsliðið í knattspyrnu nái á HM í Rússlandi?“
Svarmöguleikar voru: „Kemst ekki upp úr riðlinum“, „Kemst í 16 liða úrslit“, „Kemst í 8 liða úrslit“, „Kemst í undanúrslit“, „Kemst í úrslitaleikinn“, „Vinnur keppnina“, „Veit ekki/ vil ekki svara“. Samtals tóku 86,6% afstöðu til spurningarinnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Framboð Viktors gilt
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Snorri Jakobsson: Fjárfestar hafa flutt sig af hlutabréfamarkaði yfir á fasteigna- og lóðamarkað

Snorri Jakobsson: Fjárfestar hafa flutt sig af hlutabréfamarkaði yfir á fasteigna- og lóðamarkað
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Baldur um viðtalið umdeilda: „Ef ég hefði sagt eitthvað annað, þá hefði ég sagt ósatt“

Baldur um viðtalið umdeilda: „Ef ég hefði sagt eitthvað annað, þá hefði ég sagt ósatt“
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Flestir kjósa til vinstri, líka hægrimenn

Sigmundur Ernir skrifar: Flestir kjósa til vinstri, líka hægrimenn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Katrín græðir tæpast á tengslum við handlangara Bjarna Ben

Orðið á götunni: Katrín græðir tæpast á tengslum við handlangara Bjarna Ben
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jón Sigurður skrifar: Eiga ekki saman Jón og Júróvisjón

Jón Sigurður skrifar: Eiga ekki saman Jón og Júróvisjón
Eyjan
Fyrir 1 viku

Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins til liðs við kosningateymi Katrínar

Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins til liðs við kosningateymi Katrínar