Forsætisráðherra hefur ákveðið að skipa framtíðarnefnd. Nefndinni er ætlað að fjalla um helstu tækifæri og ógnanir Íslands í framtíðinni m.t.t. langtímabreytinga á umgengni við náttúruna, lýðfræðilegra breytinga og þeirra hröðu umskipta sem eru í vændum með síaukinni sjálfvirkni og tæknibreytingum. Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins.
Ekki er vitað til þess að íslenskir stjórnmálamenn hafi áður hugsað svo langt fram í tímann í áætlanagerð sinni.
Verkefni nefndarinnar verða eftirfarandi:
Framtíðarnefnd mun skila greinargerð um störf sín til forsætisráðherra árlega sem mun upplýsa Alþingi um störf nefndarinnar. Nefndarmenn eru alþingismennirnir: Smári McCarthy, formaður, Líneik Anna Sævarsdóttir, varaformaður, Andrés Ingi Jónsson, Lilja Rafney Magnúsdóttir, Bryndís Haraldsdóttir, Njáll Trausti Friðbertsson, Halla Signý Kristjánsdóttir, Gunnar Bragi Sveinsson, Þorsteinn Víglundsson, Logi Einarsson og Inga Sæland. Unnur Brá Konráðsdóttir er fulltrúi forsætisráðuneytisins og starfsmaður nefndarinnar.