Nýr borgarmeirihluti verður kynntur í dag klukkan 10.30 við Breiðholtslaug. Eftir viðræður Viðreisnar, Samfylkingar, Pírata og Vinstri grænna undanfarna tólf daga hefur niðurstaða og samkomulag náðst um málefni, verkaskiptingu og stjórn borgarinnar fyrir næsta kjörtímabil, að því er segir í tilkynningu.
Óstaðfestar fregnir herma að Dagur B. Eggertsson verði áfram borgarstjóri, en nokkrar umræður sköpuðust í kjölfar kosninga um að ráðinn yrði borgarstjóri til verksins, þar sem hvorki Dagur né Þórdís Lóa, oddviti Viðreisnar, gætu ekki gert tilkall til embættisins í ljósi úrslita kosninga.
Viðreisn var í oddastöðu eftir kosningar og kaus að leita til vinstri í fyrri meirihlutann, en Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokksins, sagði ítrekað eftir kosningar að hann teldi það eðlilegast að stærsti flokkurinn leiddi slíkar meirihlutaviðræður, sé litið til sögunnar og hefðar.