fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Eyjan

Segir þingkonu hafa varað norrænu sendiráðin við „níðingnum“ Braga Guðbrands: „Ætlar þetta fólk, hinir sjálfskipuðu dómarar, að biðjast afsökunar?“

Ritstjórn Eyjunnar
Föstudaginn 8. júní 2018 13:20

Ögmundur Jónasson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Niðurstöður óháðrar úttektar á tilteknum málum á sviði barnaverndar leiða í ljós að málsmeðferð velferðarráðuneytisins í máli forstjóra barnaverndarstofu, Braga Guðbrandssonar, var ábótavant.

Í stuttu máli hefur Bragi verið hreinsaður af þeim ásökunum sem á hann voru bornar.

Ögmundur Jónasson, fyrrum ráðherra Vinstri grænna, tekur upp hanskann fyrir Braga og Ásmund Einar Daðason, félagsmálaráðherra og spyr hvað verði um dómarana, nú þegar sakborningurinn hafi verið sýknaður.

Hann rekur fyrst hvernig vegið hafi verið að æru Braga og Ásmundar:

„Á undanförnum mánuðum hefur Bragi Guðbrandsson, forstöðumaður Barnaverndarstofu (nú í leyfi), verið borinn þungum sökum í nokkrum fjölmiðlum og á Alþingi. Honum var gefið að sök að hafa gerst brotlegur við lög, farið út fyrir verksvið sitt og jafnvel lagst á sveif með barnaníðingi!

Núverandi félags- og jafnréttisráðherra fékk einnig sinn skammt. Hvers vegna birti hann ekki orðréttan úrskurð velferðarráðuneytisins, sem hafði að geyma áfellisdóma yfir Braga og hvers vegna í ósköpunum slíkur maður hafi verið studdur í framboð í barnaréttarnefnd Sameinuðu þjóðanna?

Stundin birti myndir og fyrirsagnir sem tengdu Braga Guðbrandsson illri meðferð á börnum og Kjarninn sagði á þá leið að nú væru allir raftar dregnir á flot til að verja spillinguna en einhverjir þingmenn stæðu sem betur fer í fæturna til að berjast gegn ósómanum.

Fyrrverandi félags- og jafnréttisráðherra furðaði sig á því að rannsóknaniðurstöður frá sinni tíð í ráðuneytinu hefðu ekki verið birtar möglunarlaust. Ef svo hefði verið gert væri ráðherrann laus úr snörunni og málið dautt hvað hann varðaði. En við það er að bæta að fleira væri þá dautt og vísa ég þar í æru forstjórans. Hún hefði þá verið að engu gerð. Ég minnist þess varla að eins hörð hríð hafi verið gerð að æru nokkurs embættismanns og æru Braga Guðbrandssonar í þessu makalausa máli.“

 

Málið horfir nú öðruvísi við

„En nú er kominn niðurstaða óháðrar rannsóknarnefndar. Og viti menn, sakborningurinn Bragi Guðbrandsson er að fullu sýknaður og hreinsaður af svívirðilegum áburði á hendur honum í svokölluðu Hafnarfjarðarmáli, sem sagt er hafa verið hið alvarlegasta í þeirri gagnrýni sem fram var borin á hendur honum og þar sem honum var ætlað að hafa farið út fyrir sitt verksvið sitt í trássi við lög.

Ásmundur Einar Daðason, núverandi félagsmálaráðherra, má einnig vel við una því hann hefur haldið hárrétt á málum samkvæmt niðurstöðum rannsóknarnefndarinnar, með einni undantekningu þó. Og það er að hafa látið niðurstöður ráðuneytisins frá því í ráðherratíð Þorsteins Víglundssonar, standa óhaggaðar því í ljós kemur að þær voru settar fram að óathuguðu máli. Með öðrum orðum, ráðuneytið hafi verið búið að gera forstjórar Barnaverndarstofu að skotspæni áður en úttekt hefði farið farið fram. Auk þess hefðu stjórnsýslureglur verið þverbrotnar. Ráðuneytið fær almennt slæma útreið í skýrslunni og er legið á hálsi fyrir að hafa ekki rannsakað þau mál sem þar voru færð upp á borð áður en niðurstaða var fengin. Þetta þýðir að alrangt er hjá Þorsteini Víglundssyni, fyrrum ráðherra að í niðurstöðum ráðuneytisins hefði verið að finna lokapunktinn í málinu.

Allt virðist þetta hafa tengst ásetningi ráðuneytisins að keyra í gegn skipulagsbreytingar sem í reynd fólu í sér niðurlagningu á Barnaverndarstofu gegn vilja forstjórans. En það er önnur saga þótt nátengd sé. (Um þetta hef ég skrifað margoft enda áhugamaður um skipulag málaflokksins. sjá m.a. hér)

Núverandi félagsmálaráðherra, Ásmundur Einar Daðason, hefur stigið afgerandi skref til að laga stjórnsýsluna og á hann fyrir það lof skilið. Hann hefur gert rétt í því að stíga upp úr gömlum hjólförum á þessu málasviði og horfa til framtíðar.“

 

Segir þingkonu hafa varað við „níðingnum“ Braga

Ögmundur fullyrðir einnig að ónefnd þingkona hafi rægt Braga Guðbrandsson og varað sendiráð Norðurlandanna við „níðingnum“ sem væri í framboði fyrir Íslands hönd um sæti í Barnaréttarnefnd sameinuðu þjóðanna:

„Í þessu samhengi má nefna að hermt er að þingmaður hafi gengið svo langt að hafa samband við sendiráð Norðurlandanna hjá Sameinuðu þjóðunum til að vara við níðingnum í framboði!“

Í lokin spyr Ögmundur síðan hvort þetta fólk ætli að biðjast afsökunar:

„En nú þegar Ásmundur Einar og höfuðsakborningurinn Bragi Guðbrandsson hafa báðir verið „sýknaðir“, hvað gera þá hinir sjálfskipuðu  dómarar? Þar er ég til dæmis að tala um formann velferðarnefndar Alþingis sem hafði uppi stór orð, þingkonuna sem hafði samband við norrænu sendiráðin til að rægja íslenska frambjóðandann; sleggjudómarann, fyrrum félagsmálaráðherra, Þorstein Víglundsson, sem sjálfur situr uppi með svarta Pétur, fjölmiðlamennina sem átu upp allan áburðinn gagnrýnislaust og svo hina sem voru beinir gerendur í aðförinni. Ætlar þetta fólk, hinir sjálfskipuðu dómarar, að biðjast afsökunar?“

 

-Uppfært-

Blaðamaður Eyjunnar skildi pistil Ögmundar í fyrstu þannig, að verið væri að ræða um Halldóru Mogenssen, þingmann Pírata, sem hefði varað við Braga hjá norrænu sendiráðunum.

Bar fyrirsögn fréttarinnar það með sér í nokkrar mínútur.

Fyrirsögninni og fréttinni hefur nú verið breytt, vegna ábendingar frá Ögmundi um að ekki sé um Halldóru að ræða.

Er Halldóra og Ögmundur beðin velvirðingar á mistökunum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Hvalur sprakk í tætlur

Nýlegt

Eyjan
Í gær

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn
Eyjan
Í gær

800 milljóna halli en þokast í rétta átt

800 milljóna halli en þokast í rétta átt
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Jón Gnarr: Forseti tali íslensku á alþjóðavettvangi – íslenskan á að fá að hljóma

Jón Gnarr: Forseti tali íslensku á alþjóðavettvangi – íslenskan á að fá að hljóma
Eyjan
Fyrir 3 dögum

„Vopnið ykkur fyrir kosningarnar“

„Vopnið ykkur fyrir kosningarnar“
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Gamli kanslarinn vill fá skrifstofuna sína aftur – Ekki líklegt að það gangi eftir

Gamli kanslarinn vill fá skrifstofuna sína aftur – Ekki líklegt að það gangi eftir
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Baldur með mesta fylgið samkvæmt nýrri könnun

Baldur með mesta fylgið samkvæmt nýrri könnun