fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Eyjan

Landlæknir:  „Tilhneiging að „leysa“ vandamálin á einfaldan og fljótlegan hátt með lyfjum í stað þess að takast á við vandann“

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 5. júní 2018 12:00

Alma Dagbjört Möller, landlæknir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í pistli embættis landlæknis í Læknablaðinu sem ber heitið „ Er þörf á hugarfarsbreytingu“, er fjallað um geðlyf og notkun þeirra á Íslandi, en íslendingar skera sig úr þegar kemur að notkun þeirra, í samanburði við aðrar þjóðir.

Í pistlinum er fullyrt að engar vísbendingar finnist um að þeir sjúkdómar sem um er rætt séu algengari hér á landi en annarsstaðar. Hinsvegar sé kerfið hér á landi brotakennt:

„Á Íslandi er brotakennt heilbrigðiskerfi sem lýsir sér meðal annars í því að sjúklingar fá ekki alltaf þá þjónustu sem þeir þurfa. Í slíku kerfi er tilhneiging að „leysa“ vandamálin á einfaldan og fljótlegan hátt með lyfjum í stað þess að takast á við vandann á annan hátt sem oftast er vænlegra til langtímaárangurs. Ofgreiningar og sjúkdómavæðing er sennilega hluti vandans. Hér má benda á að ofvirkni með athyglisbresti (ADHD) er ein örfárra sjúkdómsgreininga sem fólk sækist eftir að fá. Lyfjafyrirtækin hafa í sumum tilfellum haft uppi óvönduð vinnubrögð varðandi markaðssetningu og lyfjakynningar þar sem ný lyf hafa verið fegruð á ýmsan hátt án þess að innistæða væri fyrir því. Það er læknirinn sem á að stjórna lyfja-gjöfinni en ekki sjúklingurinn eða aðstandendur hans. Mörg dæmi eru um að einstaklingar sem misnota lyf eða selja þau blekki lækna varðandi sjúkdómsgreiningar, sjúkdómseinkenni, lyfjaval, skammta eða annað í annarlegum tilgangi.“

Þá eru læknaávísanir sagðar of miklar:

„Of mikið er um langtímaávísanir (fjölnota seðlar eða vélskömmtun) á ávanabindandi lyf sem sum eru einungis ætluð til skammtímanotkunar. Slíkar ávísanir eru í mörgum tilvikum endurnýjaðar meira eða minna sjálfvirkt án þess að fram fari nauðsynlegt endurmat á ástandi sjúklings. Oft er ávísað óþarflega stórum pakkningum eða óþarflega miklu magni. Þetta er jafnvel gert þegar verið er að prófa sig áfram með lyfjaval og óvissa ríkir um árangur af viðkomandi lyfi. Þetta er líka gert við útskriftir eftir aðgerð á sjúkrastofnun þar sem stundum er ávísað sterku verkjalyfi eða svefnlyfi sem mundi endast í margar vikur eða mánuði þegar kannski má búast við þörf fyrir lyfið í nokkra daga. Það eykur á þennan vanda að í ýmsum tilvikum eru ekki á markaði litlar pakkningar en því er að mestu stjórnað af lyfjafyrirtækjunum.“

Einnig er fjallað um svokallað „læknaráp.“:

„Langflestir læknar nota lyfjagagnagrunn landlæknis reglulega og eins og búast mátti við hefur það dregið úr læknarápi. Þrátt fyrir þetta er enn of mikið um læknaráp og læknar eru ekki að nota lyfjagagnagrunninn eins mikið og æskilegt væri. Ef lyfjafræðingar í apótekum verða varir við að sami sjúklingur fái sömu lyf afgreidd frá fleiri en einum lækni á sama tíma ættu þeir að hafa samband við lækna og ræða við þá áður en lyfin eru afgreidd. Of mikið er um það að aldraðir (>60 ára) fái skammta slævandi lyfja sem eru of stórir miðað við aldur. Slíkt getur valdið syfju og sljóleika, aukið hættu á byltum og beinbrotum og skert lífsgæði verulega. Það hægir mjög á brotthvarfi lyfja með aldri og dæmi eru um að hæfilegir skammtar minnki um helming frá 40 ára til 80 ára aldurs. Þetta á einkum við þegar aldraðir eru komnir á mörg lyf og/eða langtímanotkun lyfja sem ætluð eru til skamms tíma.“

Að lokum er sagt að hugafarsbreytingu þurfi til að bæta ástandið:

„Með tilkomu lyfjagagnagrunns land-læknis er auðvelt að bera saman notkun lyfja á Íslandi og hinum Norðurlöndunum. Erfiðara er að finna haldbærar skýringar á mikilli notkun sumra lyfja hér á landi.  Skýringin getur legið bæði hjá læknum sem ávísa og sjúklingum sem sækja í lyf en einnig í skipulagi heilbrigðiskerfisins. Til að vinna gegn þessu ástandi þarf hugarfarsbreytingu sem nær til lækna, sjúklinga og samfélagsins alls. Til að stuðla að slíkri hugarfarsbreytingu er lykilorðið fræðsla og jafnvel breyttar og skýrari reglur sem bæta meðferð.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“