fbpx
Þriðjudagur 16.apríl 2024
Eyjan

Bylting í umhverfismálum Akurnesinga með nýrri skólphreinsistöð

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 16. maí 2018 15:25

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ný hreinsistöð skólps verður tekin í notkun á Akranesi í dag og bætist bærinn þar með í hóp þeirra sveitafélaga sem uppfylla kröfur um skólphreinsun samkvæmt reglugerð. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Með hreinsistöðinni er stigið stórt skref í umhverfismálum Akurnesinga. Fyrir uppbyggingu fráveitunnar rann óhreinsað skólp út um átta meginútrásir, nálægt fjöruborði. Nú er skólpi veitt frá þessum útrásum og í hreinsistöð. Uppbygging kerfisins fól í sér, auk hreinsistöðvarinnar, uppsetningu á sex nýjum dælubrunnum sem dæla skólpinu frá gömlu útrásunum í átt að hreinsistöðinni, nokkrum kílómetrum af nýjum lögnum á landi og sjólögn frá hreinsistöðinni. Stöðin hreinsar öll gróf efni úr skólpinu auk þess að sía frá sand og fitu. Skólpinu er því næst dælt um hálfan annan kílómetra út í sjó.

Hönnun mannvirkisins hófst árið 2006 og var smíði þess boðin út í áföngum 2007 og 2008. Árin 2008-2010 voru mannvirkin byggð, dælubrunnar settir niður og megnið af lagnavinnu klárað. Erfið fjárhagsstaða Orkuveitu Reykjavíkur í kjölfar hrunsins varð til þess að frekari nýframkvæmdum var frestað. Þráðurinn var svo tekinn upp á Akranesi árið 2015 þegar lögð var lögn í sjó og í dag sjáum við fyrir endann á þessari stórframkvæmd. Á næstu vikum taka Veitur svo formlega í notkun nýja skólphreinsistöð í Borgarnesi.

Veitur þjóna 60% landsmanna

Veitur annast uppbyggingu og reka fráveitukerfi fyrir um 40% landsmanna, í Reykjavík, Borgarnesi, á Akranesi, Bifröst, Hvanneyri, Varmalandi og í Reykholti auk þess að hreinsa skólp frá fráveitum í Kópavogi, Mosfellsbæ, Seltjarnarnesi og hluta Garðabæjar í hreinsistöðvum sínum við Ánanaust og Klettagarða. Í Borgarbyggð reka Veitur fjórar tveggja þrepa hreinsistöðvar þar sem, auk grófhreinsunar, fer fram niðurbrot á lífrænum efnum áður en hreinsuðu skólpi er veitt í viðkvæman viðtaka. Veitur þjóna þannig um 60% landsmanna með skólphreinsun af þeim 77% sem búa við fráveitu er uppfyllir kröfur samkvæmt reglugerð.

 Góð umgengni mikilvæg

Mannvirki sem þetta kostar mikinn pening, bæði í byggingu og rekstri. Það skiptir máli að umgangast það á réttan hátt svo það komi að sem mestu gagni. Undanfarin misseri hafa Veitur staðið fyrir átakinu Blautþurrkan er martöð í pípunum sem ætlað er að vekja athygli á því að klósett eru ekki ruslafötur. Í  þau eiga ekki að fara blautþurrkur, bindi, eyrnapinnar, tannþráður eða aðrar hreinlætisvörur.  Á hverjum degi fáum við gríðarlegt magn af rusli í hreinsistöðvarnar okkar. Mikil vinna og kostnaður felast í því að hreinsa dælur og farga ruslinu. Með því að minnka magn óæskilegra hluta og efna sem við sendum í fráveituna getum við lækkað kostnað verulega. Til viðmiðunar þá sturtum við fjórfalt meira niður af slíku en Svíar.

Fita og olía á heldur ekki heima í fráveitukerfinu. Fita og blautklútar eru til dæmis slæm blanda. Úr þeim efnivið geta orðið til svokallaðir fituhlunkar, eða ”fatbergs” eins og þeir heita upp á ensku. Þeir eru stórt vandamál í fráveitukerfum víða um heim og hér á landi líka. Málning, leysiefni, lyf og önnur efni eiga ekkert erindi í niðurföllin, því skal skila í endurvinnslu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Trausti rúinn og reistur til valda

Sigmundur Ernir skrifar: Trausti rúinn og reistur til valda
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Guðjón Auðunsson: Enn sérstakt áhættuálag á Ísland hjá erlendum fjárfestum – krónan þjóðhagslegt vandamál?

Guðjón Auðunsson: Enn sérstakt áhættuálag á Ísland hjá erlendum fjárfestum – krónan þjóðhagslegt vandamál?
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Breskur þingmaður lenti í „hunangsgildru“ – Síðan gerði hann svolítið enn verra

Breskur þingmaður lenti í „hunangsgildru“ – Síðan gerði hann svolítið enn verra
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Rífandi gangur í stærsta hagkerfi heims

Rífandi gangur í stærsta hagkerfi heims
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Innmúraðir sjálfstæðismenn ósáttir við undirskriftalistann gegn Bjarna – „Stafrænt stríð“

Innmúraðir sjálfstæðismenn ósáttir við undirskriftalistann gegn Bjarna – „Stafrænt stríð“
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: „Samstaðan í ríkisstjórninni“ – sjálfstæðismenn og Framsókn reyndu allt til að losna við VG

Orðið á götunni: „Samstaðan í ríkisstjórninni“ – sjálfstæðismenn og Framsókn reyndu allt til að losna við VG