„Stjórn þingflokks Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs fordæmir atburðina í Palestínu á liðnum dögum og vikum, þar sem ísraelskir hermenn hafa myrt fjölda mótmælenda með köldu blóði. Þessi grimmilegu viðbrögð Ísraelsstjórnar við fyrirsjáanlegum mótmælum vegna vanhugsaðrar ákvörðunar Bandaríkjastjórnar um að flytja sendiráð sitt til Jerúsalem eru ólíðandi, en íslensk stjórnvöld vöruðu einmitt við þeirri ákvörðun,“
segir í tilkynningu frá Vg í dag.
„Vinstrihreyfingin grænt framboð hefur alla tíð lagt áherslu á nauðsyn þess að leitað verði friðsamlegra lausna í deilum fyrir botni Miðjarðarhafs. Raunverulegur friður getur aldrei komist á með vopnavaldi og kúgun. Minnt er á mikilvægi þess að standa vörð um alþjóðalög og að ekki sé brotið á mannréttindum íbúa svæðisins. Stjórn þingflokks Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs minnir jafnframt á samþykkt Alþingis Íslendinga frá 2011 um viðurkenningu á sjálfstæði og fullveldi Palestínu.“