Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, fundaði með Degi B. Eggertssyni, borgarstjóra, í forsætisráðuneytinu í dag. Efni fundarins var staða undirbúnings við Borgarlínuverkefnið en borgarstjóri kynnti hana fyrir forsætisráðherra, sem og næstu skref í samtali ríkis og borgar um samgönguframkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu. Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins.
Þau ræddu mikilvægi þess að góð samstaða tækist um framhaldið þannig að hefja megi formlegar viðræður ríkisins og Reykjavíkurborgar og annarra sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um fjármögnun Borgarlínu og annarra framkvæmda á næstu árum.
Borgarlínan hefur verið umdeild í aðdraganda kosninga, en Sjálfstæðisflokkurinn og Eyþór Arnalds er henni andvígur, ásamt fleiri flokkum, ekki síst vegna kostnaðar, sem talinn er á bilinu 70-1000 milljarðar.
„Borgarlínan er nýtt og afkastamikið kerfi almenningssamgangna sem sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu undirbúa nú í sameiningu. Borgarlínan er forsenda þess að sveitarfélögin geti þétt byggð í miðkjörnum og við línuna og vaxið án þess að brjóta nýtt land undir byggð utan skilgreindra vaxtarmarka. Með Borgarlínu verður hægt að byggja hagkvæmari rekstrareiningar með að byggja þéttari byggð t.d. með því að hafa færri bílastæði. Borgarlínan mun ganga eftir samgöngu- og þróunarásum sem verið er að festa í svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins,“
segir á vef Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.