Persónuvernd hefur gefið Reykjavíkurborg leyfi til að senda hóp sms á unga kjósendur fyrir komandi borgarstjórnarkosningar, til áminningar um að taka þátt, en kjörsókn hefur farið minnkandi með árunum, ekki síst meðal yngsta aldurshópsins. Þetta kemur fram á vef RÚV.
Ekki er leyfilegt að senda sms skilaboð í markaðsskyni samkvæmt fjarskiptalögum, en Persónuvernd metur það svo að áminning Reykjavíkurborgar falli ekki undir skilgreininguna á markaðssetningu.
Reykjavíkurborg hafði sótt um undanþágu til Póst- og fjarskiptastofnunnar vegna málsins, en stofnunin treysti sér ekki til að afgreiða málið og vísaði því til Persónuverndar, sem svaraði borginni í gær:
„Ekki verður séð að slíkt eigi við hér enda er sú vinnsla sem í erindi yðar greinir ekki í þeim tilgangi að afla fylgis við tilteknar stjórnmálahreyfingar, menn eða málefni, heldur til almennrar vitundarvakningar og upplýsinga um kosningarétt, framkvæmd kosninga og kjörstaði,“
segir í svari Persónuverndar til Reykjavíkurborgar.
Eyþór Arnalds, borgarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins, sagði við Eyjuna að sms sendingar borgarinnar væru ekkert annað en kosningaáróður Samfylkingarinnar:
„Það er engin spurning að borgarstjóri notar borgina í áróðursskyni, til þess að koma sínum pólitísku skilaboðum áleiðis og hann seilist ansi langt í þeim efnum þykir mér“
Reykjavíkurborg hyggst einnig senda sms skeyti á íbúa valinna hverfa í Reykjavík, til áminningar um götuhreinsanir, í tilraunaskyni.
Eyþór segir tímasetninguna enga tilviljun:
„Borgin er augljóslega notuð sem áróðurstæki í kosningabaráttu Samfylkingarinnar. Nú til þess að auglýsa um hreinsun gatna, merkilegt nokk, sem hefur heldur betur vantað upp á síðustu árin.“