Flestir íslendingar eru andvígir tilfærslu valds yfir orkumálum til Evrópskra stofnana. Þetta er niðurstaðan í nýrri könnun sem unnin var af Maskínu fyrir Heimssýn, hreyfingu sjálfstæðissinna í Evrópumálum. Alls mælist andstaðan 80.5 prósent.
Þeir sem eru mjög andvígir eru 57,4 prósent, fremur andvígir eru 23 prósent og í meðallagi mældust 11,3 prósent.
Þeir sem voru fremur fylgjandi mældust 4.5 prósent, og mjög fylgjandi 3.8 prósent.
Nánast allir stuðningsmenn ríkisstjórnarflokkanna eru andvígir og stór meirihluti stuðningsmanna þeirra flokka sem standa utan ríkisstjórnar. Þá er mikill meirihluti í öllum aldurshópum, búsetuhópum og öðrum hópum sem greindir voru á móti tilfærslu valds til ESB í orkumálum.
Andstaðan mælist þó mest hjá stuðningsmönnum Sjálfstæðismanna, en 91,6 prósent þeirra eru andvígir.
Hjá Miðflokksfólki er andstaðan 91,1 prósent.
Hjá Framsóknarmönnum er andstaðan 88.5 prósent.
Hjá stuðningsmönnum VG mælist andstaðan 86,3 prósent.
Kjósendur Flokks fólksins mælast 64,1 prósent andvígir.
Samfylkingarfólk mælist 63,8 andvígt.
Þeir sem kjósa Pírata mælast 60,8 prósent andvígir.
Konur eru líklegri til að vera á móti, en 83,8 prósent þeirra sögðust andvígar, móti 77,7 prósentum hjá körlum.
Andstaðan var minnst hjá þeim sem búa í Reykjavík, eða 75,8 prósent og nágrannasveitafélög Reykjavíkur mældust með 81 prósenta andstöðu.
Suðurland og Reykjanes – 84,5%
Vesturland og Vestfirðir – 85,2%
Norðurland – 85,4%
Austurland- 87%
18-29 ára- 63,7%
30-39 ára- 70,6%
40-49 ára- 83,2%
50-59 ára- 90,6%
60 ára og eldri- 89,7%
Könnunin var gerð dagana 24. apríl – 7. maí. Svarendur voru 848 á aldrinum 18-75 ára af öllu landinu.
Klofningur hjá forystu Sjálfstæðisflokksins ?
Samkvæmt minnisblaði Ólafs Jóhannesar Einarssonar, lögmanni hjá BBA lögmannsstofu og fyrrum framkvæmdarstjóra EFTA, sem hann skrifaði á fundi sínum með ráðherra ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra ásamt embættismönnum í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu um þriðja orkupakka Evrópusambandsins, eru áhyggjur manna af meintu framsali valds yfir orkumálum óþarfar.
Þar segir að ACER, stofnunin sem færi með orkumálin, hefði engar valdheimildir gagnvart einkaaðilum og að orkupakkinn haggaði í engu rétti Íslands til að ákveða skilyrði nýtingu á orkuauðlindum landsins og að upptakan á orkupakkanum hefði í raun óverulegar breytingar í för með sér.
Þetta hefur verið línan sem Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ráðherra orkumála, hefur talað útfrá.
Hinsvegar hafnaði landsfundur Sjálfstæðisflokksins frekara framsali á yfirráðum á íslenskum orkumarkaði til stofnana ESB og hefur Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og fjármálaráðherra, talað með þeim hætti sjálfur í fjölmiðlum.
Hefur þetta leitt til þeirrar spurningar hvort forysta Sjálfstæðisflokksins sé klofin þegar kemur að orkumálunum.