fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Eyjan

Leysum húsnæðis- og skipulagsmálin

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 14. maí 2018 20:00

Ingvar Mar Jónsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ingvar Mar Jónsson ritar:

Reykjavík með forystu

Á  7. og 8. áratug síðustu aldar byggðist Breiðholtið upp af miklum myndarskap og þangað fluttu barnafjölskyldur í stórum stíl.  Þaðan á ég ljúfar minningar úr barnæsku minni.  Þar var mikill fjöldi barna sem lék sér saman, sundlaug og skíðabrekka í göngufæri og allskyns íþróttaiðkun í hverfinu.

Á 9. áratugnum hóf Reykjavíkurborg aftur uppbygginu nýs íbúahverfis í Grafarvogi.  Ég var svo heppinn að fá að taka þátt í því ævintýri sem unglingur í minni fyrstu byggingarvinnu en þar var sagt:  “ Ingvar, það þurfa allir þak yfir höfuðið“.

Kópavogur tók við forystuhlutverkinu

Frá 10. áratugnum hefur Kópavogur dregið vagninnn og íbúum þar hefur fjölgað hratt og þar sem íbúum fjölgar þar aukast tekjur sveitarfélaga.  Á síðustu árum hafa Garðabær og Hafnarfjörður einnig ráðist í mikla uppbyggingu íbúðarhúsnæðis.

Hvar stendur Reykjavík í þessum samanburði?  Það er augljóst að Reykjavíkurborg hefur misst af mikilvægum tækifærum þar sem hún hefur ekki fylgt eftir íbúaþróun á höfuðborgarsvæðinu.  Borgin hefur auk þess orðið fyrir miklu tekjutapi vegna þessa. Það sæmir henni ekki sem höfuðborg að hafa misst af lestinni.  Höfuðborgin þarf að taka hlutverki sínu alvarlega og standa undir nafni.

Reykjavík tekur forystu á ný

Til að leysa húsnæðisvandann þarf Reykjavík að reisa nýtt íbúahverfi.  Það er ekki nóg að þétta byggðina eins og gert hefur verið.  Skipulagsmálin þarf að taka fastari tökum.  Í því felst að borgaryfirvöld hafi skýrari framtíðarsýn og fylgi henni eftir.

Mín sýn er glæsilegt hverfi með góðar samgöngutengingar þar sem allir yrðu stoltir af að búa.  Möguleikarnir eru margir t.d. Keldnaholt eða Geldinganes með tengingu um Sundabraut.  Ennig er brýnt er halda áfram uppbygingu í Úlfarsárdal. Það er ekki eftir neinu að bíða.  Framundan eru borgarstjórnarkosningar þar sem kosið verður um fólk til að gegna forystu í skipulagsmálum.

Ég skora á kjósendur að hugsa um þessi mikilvægu mál.  Brýn þörf er á breytingum.  Skipulagsmálin verða að vera í lagi og uppbygging við hæfi.  Lærum af biturri og erfiðri reynslu.  Horfum fram á veginn og gerum Reykjavík að leiðandi afli í sínu hlutverki sem höfuðborg. Reykjavík er svo miklu meira en 101 Reykjavík.

Getum við ekki verið sammála um það?

Ingvar Mar Jónsson, flugstjóri og oddviti Framsóknar í borgarstjórnarkosningum 26. maí 2018.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Eyjan
Í gær

800 milljóna halli en þokast í rétta átt

800 milljóna halli en þokast í rétta átt
Eyjan
Í gær

Þorsteinn Siglaugsson skrifar: Gervigreind og máttur tungumálsins

Þorsteinn Siglaugsson skrifar: Gervigreind og máttur tungumálsins
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ásdís Rán segist hafa verið óskipaður sendiherra Íslands

Ásdís Rán segist hafa verið óskipaður sendiherra Íslands
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Guðjón Auðunsson: Skuldsetning fasteignafélaga – þetta er eins og að snúa herskipi á andapolli

Guðjón Auðunsson: Skuldsetning fasteignafélaga – þetta er eins og að snúa herskipi á andapolli