fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Eyjan

Dagur lofar lóðum undir stúdenta og verkafólk

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 14. maí 2018 18:01

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri, Guðrún Björnsdóttir framkvæmdastjóri Félagsstofnunar stúdenta og Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Félagsstofnun stúdenta og Bjarg íbúðafélag hafa fengið lóðarvilyrði til að byggja 260 leiguíbúðir fyrir stúdenta og félagsmenn verkalýðshreyfingarinnar í Skerjabyggð við Skerjafjörð. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri, Guðrún Björnsdóttir framkvæmdastjóri Félagsstofnunar stúdenta og Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ skrifuðu undir samkomulög þess efnis í dag.

Skipulagssamkeppni var haldin um skipulag í Skerjafirði og er verið að vinna að deiliskipulagstillögu á grundvelli hennar. Um er að ræða landsvæði sem opnaðist sem byggingarland þegar litlu flugbrautinni var lokað en þar verður byggð með um eitt þúsund íbúðum.

„Það er mjög ánægjulegt að geta staðfest uppbyggingu stúdenta og verkalýðshreyfingarinnar á þessu nýja byggingarlandi í Skerjafirði. Þetta er mikilvæg viðbót við mikla uppbyggingu byggingafélaga án hagnaðarsjónarmiða sem nú á sér stað í borginni. Stúdentar eru nú að byggja 244 íbúðir við Sæmundargötu og þessar 160 í Skerjafirði ættu að geta farið í byggingu strax í kjölfarið. Sömu sögu er að segja af Bjargi, byggingarfélagi verkalýðshreyfingarinnar sem mun verða komið af stað með 611 íbúðir í byggingu í árslok. Þessar 100 í Skerjafirðinum verða góð viðbót við það enda er skortur á leiguíbúðum á viðráðanlegu verði,“

sagði Dagur B. Eggertsson borgarstjóri.

Bjarg sem er íbúðafélag verkalýðshreyfingarinnar hefur fengið vilyrði fyrir lóð þar sem leyft verður að byggja 100 íbúðir.

Þann 12. mars 2016 gerðu ASÍ og Reykjavíkurborg viljayfirlýsingu um að Reykjavíkurborg myndi útvega lóðir fyrir byggingu 1000 leiguíbúða fyrir félagsmenn verkalýðshreyfingarinnar á næstu fjórum þar á eftir. Þegar hefur verið veitt vilyrði og úthlutað lóðum fyrir 489 íbúðir sem eru 89 íbúðir umfram það sem yfirlýsingin kveður á um fyrir árin 2016 og 2017. Að auki mun Bjarg byggja félagslegar leiguíbúðir fyrir Félagsbústaði.

Á þessu ári verður alls úthlutað lóðum fyrir 300 íbúðir Bjargs.

 

160 stúdentaíbúðir

Borgarráð hefur einnig samþykkt lóðarvilyrði til Félagsstofnunar Stúdenta sem heimilar byggingu 160 íbúða í Skerjafirði.  Vilyrðið byggir á samningi milli Reykjavíkurborgar, Félagsstofnunar stúdenta og Háskóla Íslands um að útvega 250 nemendaíbúðir á öðrum þéttingarreitum nálægt miðborg utan við háskólasvæðið.

Með lögum 52/2016 um almennar íbúðir var ákveðið að sveitarfélög og ríki gætu komið að fjármögnun íbúða á leigumarkaði með framlögum til sjálfseignastofnana eða lögaðila sem ekki eru rekin í hagnaðarskyni, sbr. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 52/2016 um almennar íbúðir. Félagsstofnun stúdenta er slík sjálfseignarstofnun.

Bjarg íbúðafélag hefur þegar hafist handa við byggingu 155 íbúða við Móaveg í Grafarvogi, 83 íbúðir við Urðarbrunn í Úlfarsárdal og 80 íbúðir við Kirkjusand.

Félagsstofnun stúdenta byggir nú 244 stúdentaíbúðir við Sæmundargötu á lóð Vísindagarða sem munu verða stærstu stúdentagarðar landsins. Alls hafa verið samþykkt áform fyrir um 1.340 stúdentaíbúðir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Katrín vildi Geir Haarde í fangelsi – hefur ekki beðist afsökunar

Orðið á götunni: Katrín vildi Geir Haarde í fangelsi – hefur ekki beðist afsökunar
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Varaþingmaður Samfylkingarinnar yfirgefur flokkinn – Segir Samfylkinguna hafa sofnað á mannréttindavaktinni

Varaþingmaður Samfylkingarinnar yfirgefur flokkinn – Segir Samfylkinguna hafa sofnað á mannréttindavaktinni
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkurinn sem yfirgaf sjálfan sig

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkurinn sem yfirgaf sjálfan sig
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Katrín með forskot á Baldur – Halla Hrund sækir í sig veðrið

Katrín með forskot á Baldur – Halla Hrund sækir í sig veðrið
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Kúrekar og jakkafatalakkar Alþingis – „Fólkið í fínu fötunum, með fínu skoðanirnar og fínu brosin“

Kúrekar og jakkafatalakkar Alþingis – „Fólkið í fínu fötunum, með fínu skoðanirnar og fínu brosin“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn
Eyjan
Fyrir 6 dögum

800 milljóna halli en þokast í rétta átt

800 milljóna halli en þokast í rétta átt