fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Eyjan

Aukið samstarf á sviði gervigreindar

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 14. maí 2018 17:00

Bjarni Benediktsson undirritar viljayfirlýsingu um samstarf Norðurlandanna og Eystrasaltsríkja á sviði gervigreindar. Mynd-Stjórnarráðsvefurinn

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra situr nú fund ráðherranefndar um stafræna væðingu á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar, sem haldinn er í Stokkhólmi. Fjármála- og efnahagsráðuneytið tók í lok árs í fyrra við öllum upplýsingamálum ríkisins og stefnumótun á því sviði og stendur nú fyrir sérstöku verkefni sem hefur það að markmiði að efla stafræna þjónustu hins opinbera við borgarana og bæta rekstur.

Á fundinum í dag var undirrituð viljayfirlýsing um samstarf Norðurlanda- og Eystrasaltsþjóðanna á sviði gervigreindar. Einnig voru ræddar stafrænar breytingar á stjórnsýslu Norðurlandanna, meðal annars markmið ríkjanna um að veita stafræna þjónustu yfir landamæri og styðja við frjálst flæði fólks, þjónustu, vara, vinnuafls o.fl. milli landanna.

Bjarni kynnti áherslur íslenskra stjórnvalda í innleiðingu stafrænnar opinberrar þjónustu og hvernig unnið er að því að styrkja stafræna innviði með ljósleiðaravæðingu landsins alls. „Það hefur sýnt sig að traust til stofnana og ánægja viðskiptavina þeirra helst í hendur við hversu vel þær standa sig í stafrænni þjónustu og upplýsingagjöf, “ sagði Bjarni og vísaði þar til árangurs RSK á sviði upplýsingamála. Hann vakti einnig athygli á almennri notkun rafrænna skilríkja á Íslandi og hvatti til þess að Norðurlöndin og Eystrasaltsríkin kæmu sér upp sameiginlegri eða gagnkvæmri viðurkenningu á rafrænum undirskriftum.

Ráðherranefnd um stafræna væðingu var komið á fót árið 2017 með Digital North, sameiginlegri stefnuyfirlýsingu norrænu samstarfsráðherranna í Osló í júní 2017. Nefndin er tímabundin, tók til starfa á þessu ári og er ætlað að ljúka störfum árið 2020. Bjarni Benediktsson tekur við formennsku í henni árið 2019 samhliða því að Ísland tekur við forystu í Norrænu ráðherranefndinni. Aðild að stafrænu nefndinni eiga tíu ráðherrar upplýsingamála á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Hartman í Val
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Guðjón Auðunsson: Áhyggjur af því að áhrif vaxtahækkana eigi eftir að bíta almenning alvarlega

Guðjón Auðunsson: Áhyggjur af því að áhrif vaxtahækkana eigi eftir að bíta almenning alvarlega
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Jón Gnarr: Forseti tali íslensku á alþjóðavettvangi – íslenskan á að fá að hljóma

Jón Gnarr: Forseti tali íslensku á alþjóðavettvangi – íslenskan á að fá að hljóma
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Lýsa vantrausti á ríkisstjórnina, krefjast þingrofs og nýrra kosninga

Lýsa vantrausti á ríkisstjórnina, krefjast þingrofs og nýrra kosninga
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Mannréttindadómstóll Evrópu slær á puttana á íslenska ríkinu – Brutu gegn rétti til frjálsra kosninga

Mannréttindadómstóll Evrópu slær á puttana á íslenska ríkinu – Brutu gegn rétti til frjálsra kosninga
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: ESB er miklu meira en sameiginlegur markaður og evran

Ole Anton Bieltvedt skrifar: ESB er miklu meira en sameiginlegur markaður og evran
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Gamli kanslarinn vill fá skrifstofuna sína aftur – Ekki líklegt að það gangi eftir

Gamli kanslarinn vill fá skrifstofuna sína aftur – Ekki líklegt að það gangi eftir
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sögusagnir sem borgin vísaði á bug eiga sér meiri stoð í raunveruleikanum en af er látið

Sögusagnir sem borgin vísaði á bug eiga sér meiri stoð í raunveruleikanum en af er látið
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Fylgið minnkað um helming – 40 þúsund vantreysta Bjarna sem sætir afarkostum VG

Orðið á götunni: Fylgið minnkað um helming – 40 þúsund vantreysta Bjarna sem sætir afarkostum VG