Nokkuð merkilegur kosningafundur verður haldinn í Laugalækjarskóla á mánudagskvöldið. Á fundinum, sem er opinn, verður lagt krossapróf fyrir frambjóðendur í Reykjavík. Niðurstöður prófsins verða birtar öllum fundarmönnum jafnóðum. Það er Kennarafélag Reykjavíkur sem stendur að þessum fundi og í tilkynningu frá félaginu segir:
Kennarafélag Reykjavíkur mun leggja krossapróf fyrir frambjóðendur í Reykjavík á opnum fundi í Laugalækjarskóla mánudagskvöldið 14.05 kl.20.00. Fundurinn verður með mjög sérstöku sniði.
Niðurstöðu krossaprófsins verður varpað upp á tjald á fundinum og verður efniviður í spurningar úr sal þar sem hver fundargestur getur spurt einn frambjóðenda einnar spurningar í hverri umferð.