fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Eyjan

Ungir Íslendingar óhamingjusamari en þeir eldri

Ágúst Borgþór Sverrisson
Laugardaginn 12. maí 2018 10:21

Vogar

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íbúar í Vogum á Vatnsleysuströnd eru hamingjusamastir og ungir Íslendingar eru óhamingjusamari en þeir eldri. Þeir sem búa nálægt höfuðborgarsvæðinu eru óánægðari með heilsugæslu og þjónustu við aldraða en þeir sem búa fjær því.

Þetta og margt fleira kemur fram í skýrslu sem Vífill Karlsson, hagfræðingur og dósent, hefur unnið fyrir Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi þar sem könnuð eru búsetuskilyrði 19 landsvæða frá Hornafirði í austri að Skagafirði í norðri.

Í könnuninni leitast Vífill meðal annars að við að kanna almenna velferð íbúanna, ánægju þeirra, framtíðaráhorf, búsetuskilyrði sem og stöðu 40 þátta er tengjast búsetuskilyrðum. Skagafjarðarsýsla fær hagstæðustu niðurstöðuna úr þáttunum 40 og fékk 77% hærri einkunn en það landsvæði sem fékk lægstu einkunnina. Akranes og Hvalfjörður koma fast á eftir en Vestmannaeyjar eru í þriðja sæti.

Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi hafa frá árinu 2004 gert íbúakönnun á þriggja ára fresti til að kanna viðhorf íbúa landshlutans til ýmissa mikilvægra mála og hvort sú afstaða taki breytingum frá einu ári til annars. Könnuninni er einnig ætlað að vera innlegg í rannsóknir á búferlaflutningum og vinnumarkaði á Vesturlandi.

Eftir allnokkuð þróunarferli var ákveðið að bjóða öðrum landshlutum að vera með. Það þáðu Suðurland, Reykjanes, Vestfirðir og Norðurland vestra og er þessi skýrsla samantekt og samanburður á þessum landsvæðum.

Meginmarkmið könnunarinnar var að draga fram afstöðu íbúa einstakra landshluta til ýmissa þátta sem telja má meðal mikilvægustu búsetuskilyrða heimilanna. Auk þess var grennslast fyrir um hvort fólk íhugaði brottflutning og ánægju þess með að búa á viðkomandi stöðum, svo eitthvað sé nefnt.

Könnunin í heild

Framsetning gagna

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Í gær

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn
Eyjan
Í gær

800 milljóna halli en þokast í rétta átt

800 milljóna halli en þokast í rétta átt
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Jón Gnarr: Forseti tali íslensku á alþjóðavettvangi – íslenskan á að fá að hljóma

Jón Gnarr: Forseti tali íslensku á alþjóðavettvangi – íslenskan á að fá að hljóma
Eyjan
Fyrir 3 dögum

„Vopnið ykkur fyrir kosningarnar“

„Vopnið ykkur fyrir kosningarnar“
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Gamli kanslarinn vill fá skrifstofuna sína aftur – Ekki líklegt að það gangi eftir

Gamli kanslarinn vill fá skrifstofuna sína aftur – Ekki líklegt að það gangi eftir
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Baldur með mesta fylgið samkvæmt nýrri könnun

Baldur með mesta fylgið samkvæmt nýrri könnun