Fyrir mér er þetta stærsta stjarnan í íslensku sjónvarpi – og raunar íslenska kvikmyndaheiminum öllum. Ragna Fossberg, meistari í förðun og leikgervum. Myndin var tekin fyrr í vikunni, hún er þarna á rauða dreglinum í Cannes með leikaranum frábæra Mads Mikkelsen (Ragna segir að hann sé fínn náungi).
Ragna hefur unnið fleiri Edduverðlaun en tölu verður á komið. Við vitum það sem störfum á RÚV að hún er algjör lykilmanneskja hjá stofnuninni enda starfsferill hennar langur. Hún hefur unnið við fjölda íslenskra kvikmynda, allt frá því kvikmyndavorið svokallað hófst í kringum 1980. Og hún hefur líka unnið við erlendar myndir, eins og til dæmis Arctic, það er myndin með Mads.
Hún var tekin á Íslandi, fjallar um vísindamann sem þarf að bjargast við mjög harðneskjulegar vetraraðstæður á norðurslóðum. Fær glimrandi dóma, sýnist mér.