Eyjan vitnar í forystugrein Morgunblaðsins þar sem kemur fram stuðningur við þá ákvörðun Donalds Trump að rifta kjarnorkusamningnum við Íran. Meðal annars má lesa þessa staðhæfingu um samninginn:
Samningurinn við Íran var óneitanlega götóttur, gallaður og ómögulegt að sannreyna hann.
Reyndar er það málum blandið. Meira að segja í Morgunblaðinu sjálfu, tveimur blaðsíðum á undan leiðaranum, er fréttaskýring eftir Boga Þór Arason þar sem segir að Íranir hafi staðið við samninginn. Ritstjórinn hefði semsagt mátt lesa sitt eigið blað:
Stjórnvöld í Bretlandi, Frakklandi, Kína, Rússlandi og Þýskalandi segjast ætla að standa við samninginn og telja að Íranar hafi staðið að fullu við skilmála hans. Alþjóðakjarnorkumálastofnunin (IAEA) hefur einnig staðfest það. Jafnvel hátt settir embættismenn í Bandaríkjunum hafa tekið undir þetta, þeirra á meðal Mike Pompeo utanríkisráðherra og Dan Coats, yfirmaður bandarísku leyniþjónustunnar.
En þarna erum við komin að viðkvæmum hlut. Gjöreyðingarvopnum og hernaði í Miðausturlöndum. Á Mogganum undir núverandi stjórn er það nánast eins og að nefna snöru í hengds manns húsi.
Efnt var til stórstyrjaldar í Írak á þeim forsendum að þar væri að finna falin gjöreyðingarvopn. Alþjóðlegir eftirlitsmenn mótmæltu þessu, en en til að styðja stríðsæsingarnar voru lögð fram fölsuð gögn.
Og svo var farið í stríð sem hleypti öllum heimshlutanum í bál og brand. Það er nokkuð almenn skoðun að þetta séu langstærstu mistök 21. aldarinnar á alþjóðavettvangi.
Meðal þeirra sem ákafast studdu innrásina í Írak var núverandi ritstjóri Morgunblaðsins, forðum forsætisráðherra og síðar utanríkisráðherra um hríð. Ísland var sett í hóp stuðningsþjóða þessa glapræðis. Maður hefur tæplega orðið var við iðrun vegna þessa.
En ein af afleiðingum stríðsins í Írak var að Íran óx ásmegin. Kjarnorkusamningurinn sem Evrópusambandsríki, Bandaríkin, Kína og Rússland studdu var tilraun til að halda frið á svæði þar sem lítill neisti getur orðið mikið bál. Til átaka kom milli Ísraela og Írana í Sýrlandi í nótt. Í dag lýsti Angela Merkel því yfir að Evrópa gæti ekki lengur treyst því að Bandaríkin – langstærsta herveldi heims – tryggi öryggi hennar.
Það eru stór tímamót. Varnarsamstarf vestrænna þjóða sem hefur haldið síðan í heimsstyrjöldinni er í uppnámi. Þetta samstarf var eins og heilagt guðspjall á Mogganum á sínum tíma, ekkert gekk því framar. En það hefur breyst.